Andvari - 01.01.2003, Blaðsíða 36
34
SIGURÐUR PÉTURSSON
ANDVARI
Hannibal aftur leið til Bolungarvíkur, þar sem örlagaríkir atburðir áttu
sér stað.
Átök í Bolungarvík
Sagan af því þegar Hannibal var tekinn höndum í Bolungarvík af and-
stæðingum verkalýðsfélagsins í maí 1932 er löngu landsfræg. Frá-
sögnin gefur í hnotskum mynd af þeim aðstæðum sem þá ríktu í sam-
félaginu og um leið af þeim eiginleikum sem Hannibal bjó yfir sem
leiðtogi verkalýðsins og baráttumaður jafnaðarstefnunnar í áratugi.
Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvrkur var stofnað 27. maí
1931.40 Formaður var kjörinn Guðjón Bjarnason verkamaður. Á stofn-
fundinn var mættur Hannibal Valdimarsson, sendur frá Alþýðusam-
bandi Vestfirðingafjórðungs eins og áður kom fram. Félagið varð aðili
að sambandinu og Álþýðusambandi Islands. I Bolungarvík höfðu áður
verið stofnuð tvö verkalýðsfélög, en þeim tókst ekki að öðlast viður-
kenningu atvinnurekenda og urðu ekki langlíf. Árið sem félagið er
stofnað hellast afleiðingar kreppunnar miklu yfir íslenskt athafnalíf.
Helsta útflutningsvara landsmanna, saltfiskurinn, hríðféll í verði og
erfiðleikar aukast við að koma vörunni í verð. Hið nýstofnaða
verkalýðsfélag átti því við ramman reip að draga, þegar það reyndi að
koma á samningum við atvinnurekendur. Aðalatvinnurekandi í Bol-
ungarvík um árabil hafði verið Pétur Oddsson. Ægivald hans yfir fólki
og fjármagni í þorpinu er að mörgu leyti talið vera fyrirmyndin að
lýsingum Halldórs Laxness á Bogesen í Sölku Völku. Hann hafði lýst
því yfir að bolsévisminn skyldi ekki komast út fyrir hólana í Bolung-
arvík á meðan hann lifði.41 Það gekk eftir. Pétur lést 2. apríl 1931 og í
maí var Hannibal mættur til að stofna verkalýðsfélag. Atvinnurekendur
í Bolungarvík, kaupmenn, útgerðarmenn og fiskverkendur, reyndu að
halda uppi merki Péturs og harðast gengu fram Högni Gunnarsson og
Bjami Fannberg. Þeir yfirtóku eignir Péturs Oddssonar frá Landsbank-
anum árið 1932 og ráku saltfiskverkun, verslun og útgerð undir nafn-
inu Gunnarsson & Fannberg.
Atvinnurekendur reyndu ákaft að komast hjá því að viðurkenna
verkalýðsfélagið. Daginn sem félagið er stofnað hækkuðu þeir tíma-
kaup karlmanna úr 70 aurum í 90 aura, og vildu þannig sýna fram á til-
gangsleysi félagsins. Áður hafði kaupið í Bolungarvík verið lægra en
á stöðum þar sem verkalýðsfélög voru virk. Neituðu þeir jafnframt að