Andvari - 01.01.2003, Blaðsíða 57
andvari
HANNIBAL VALDIMARSSON
55
Eftirmál urðu nokkur vegna skrifa Hannibals í Skutul. Miðstjórn
Alþýðusambands íslands sem að stórum hluta var skipuð sósíalistum
sendi skeyti til Alþýðusambands Vestfirðingafjórðungs og óskaði eftir
því að sambandið hætti útgáfu Skutuls. Jafnframt lýsti hún yfir að
blaðið væri Alþýðusambandi íslands algerlega óviðkomandi. Stjórn
ASV sinnti þessum boðum í engu og studdi forseta sinn og ritstjóra
einróma. Á þingi ASV í júlí 1944 var Hannibal endurkosinn forseti og
til að forðast frekari árekstra við móðursambandið í Reykjavík var
Hannibal afhentur Skutull „til fullrar eignar og umráða“.75 Hér eftir
varð Hannibal „ábyrgur ritstjóri og útgefandi“. I ávarpi til lesenda tók
hann fram að Skutull yrði eftir sem áður málsvari lýðræðisjafnaðar-
manna, verkalýðssamtaka og bindindis.76
Áhrif Hannibals má merkja á því að rúmlega 97 af hundraði kjós-
enda á landinu samþykktu niðurfellingu sambandslagasáttmálans frá
1918 og 95 af hundraði samþykktu nýju stjómarskrá íslenska lýðveld-
tsins. Á ísafirði var hlutfall þeirra sem samþykktu stjómarskrána
82,8% og var hvergi jafnlágt á landinu. Þar sögðu heil tíu prósent nei
við stjómarskránni, eins og Hannibal lagði til, en í öðrum kjördæmum
var hlutfallið yfirleitt um 1%.77
Afram hélt Hannibal að beita Skutli fyrir vagn jafnaðarstefnunnar
næstu misserin og var blaðið nú orðið þekkt um allt land. Náði það
nokkurri útbreiðslu út um landið á þessum árum. Á 25. ári blaðsins
haustið 1947 lét Hannibal af ritstjórn Skutuls og afhenti blaðið
Alþýðuflokknum á ísafirði, sem gefið hefur blaðið út síðan, þó tölu-
hlöðum hafi fækkað mikið frá því Hannibal hélt þar um penna.78 Varð
°ú nokkurt hlé á ritstjórastörfum Hannibals.
Það átti síðar fyrir Hannibal að liggja að verða ritstjóri dagblaðs, án
þess að hafa ætlað sér það hlutskipti, enda störfum hlaðinn alþingis-
niaður og flokksformaður á sama tíma. Aðstæður höguðu því þann veg
að eftir að Hannibal varð formaður Alþýðuflokksins gerðist hann rit-
stjóri Alþýðublaðsins, höfuðmálgagns hans frá árinu 1919. Bróðir hans
Finnbogi Rútur hafði áður ritstýrt blaðinu á árunum 1934-38 og gert
það að öðru stærsta dagblaði landsins á þeim árum, svo að hjó nærri
Alorgunblaðinu. Ekki var sami völlur á Alþýðublaðinu árið 1952 þegar
Hannibal tók við ritstjóm, því fjárhagserfiðleikar höfðu hrjáð blaðið
um árabil. Var það reyndar ein ástæðan fyrir því að hann settist í rit-
stJÓrastól; það þurfti ekki að borga honum laun sem ritstjóra þar sem
hann var þegar í öðru starfi. Þau tvö ár sem Hannibal stýrði blaðinu