Andvari - 01.01.2003, Blaðsíða 51
andvari
HANNIBAL VALDIMARSSON
49
sameiningu, en þær strönduðu meðal annars á ágreiningi um afstöðuna
til Sovétríkjanna. Áhrifamenn í báðum flokkum gengu til þessara við-
ræðna með blendnum hug. Ekki vildu allir alþýðuflokksmenn sætta sig
við að sameining flokkanna væri úr sögunni og þar kom, að Héðinn
Valdimarsson varaformaður Alþýðuflokksins og helstu fylgismenn
hans voru reknir úr Alþýðuflokknum. Mynduðu þeir nýjan stjómmála-
flokk með kommúnistum sem bar nafnið Sameiningarflokkur alþýðu -
Sósíalistaflokkurinn. Klofningur Alþýðuflokksins árið 1938 hafði
úrslitaáhrif á þróun verkalýðshreyfingar og stjómmála hér á landi. Þá
skildi leiðir með íslandi og nágrannalöndunum. Hér varð til flokkur
kommúnista og vinstri sósíalista sem varð jafnstór eða stærri en flokkur
jafnaðarmanna. Hvorugum flokknum tókst þó að verða hið ráðandi afl,
hvorki í verkalýðshreyfingunni né á stjómmálasviðinu.
Á ísafirði tókst forystumönnum Alþýðuflokksins að verjast klofn-
ingnum 1938 að mestu leyti. Þeir héldu áfram yfirráðum í verkalýðsfé-
lögunum á ísafirði og Alþýðusambandi Vestfjarða og forræði í bæjar-
málum. Þegar bæjarfulltrúi kommúnista á sameiginlega listanum frá
1938, Eyjólfur R. Ámason, flutti úr bænum tveim árum síðar, tók sæti
hans fyrsti varamaður listans, Helgi Hannesson úr Alþýðuflokknum,
en ekki fulltrúi kommúnista neðar á listanum.67 Þannig réðu alþýðu-
flokksmenn einir meirihlutanum næstu ár.
Árið 1938 urðu umskipti hjá Hannibal. Um haustið tók hann við
stöðu skólastjóra Gagnfræðaskólans og síðar sama ár flutti skólinn í
nýtt húsnæði við Austurveg. Alþýðuflokksmenn höfðu nokkrar
^hyggjur af því að Hannibal tæki við stöðu skólastjóra, þar sem um
hann höfðu staðið miklar deilur í verkalýðs- og stjómmálum. Hann
hafði verið stundakennari við skólann fyrst eftir að hann flutti í bæinn,
en hætt kennslu eftir einn vetur. Urðu nokkur blaðaskrif af því tilefni
þar sem Vesturland taldi að þolinmæði bæjarbúa væri þrotin í garð
Hannibals og samherja hans í skólamálum. Svaraði Hannibal fyrir sig
fnllum hálsi í Skutli, enda að starfsheiðri hans vegið. Með svarinu birti
hann vottorð um menntun sína í Danmörku og kennslu við skólann til
að rétta sinn hlut.68 Guðmundur G. Hagalín rithöfundur og samstarfs-
utaður hans segir að vinsældir hans sem kennara bæði í Súðavík og á
Isafirði hafi riðið baggamuninn um það að hann fengi starfið. Enda
kom það í ljós, þó að áfram stæðu deilur um Hannibal á stjómmála-
sviðinu, að ekki var kvartað undan stjóm hans eða kennslu við Gagn-
fræðaskólann á ísafirði.