Andvari - 01.01.2003, Blaðsíða 40
38
SIGURÐUR PÉTURSSON
ANDVARI
og grundvöllur valda jafnaðarmanna á ísafirði. Það þótti því sjálfsagt
að formaður félagsins stæði framarlega í bæjarmálum. Hannibal var
kjörinn í bæjarstjóm ísafjarðar árið 1934 og varð forseti Alþýðu-
sambands Vestfjarða árið eftir. Stærsta átakið sem Hannibal vann að í
formannstíð sinni í Baldri var bygging Alþýðuhússins. Alþýðuhús
ísfirðinga stendur sem óbrotgjam minnisvarði um áræðni og dug þeirra
forystumanna sem leiddu verkalýðshreyfinguna á fjórða áratugnum.
Það hefur þjónað sem helsta samkomuhús bæjarbúa í sjö áratugi.
Það hafði lengi verið til umræðu í Verkalýðsfélaginu Baldri að koma
upp samkomuhúsi. Eftir að Hannibal varð formaður komst skriður á
málið.49 Hann hafði áður staðið í slíkum framkvæmdum, því að meðan
hann var í Súðavík hafði hann forgöngu um að verkalýðsfélagið og
stúkan byggðu saman myndarlegt félagsheimili, sem enn stendur. Með
samstarfi Hannibals og formanns Sjómannafélagsins, Eiríks Finnboga-
sonar, varð gamall draumur um samkomuhús verkafólks á Isafirði
einnig að veruleika.
í ársbyrjun 1934 lá fyrir teikning Þóris Baldvinssonar arkitekts að
fjögurra hæða samkomuhúsi og ákvörðun um að Styrktar- og sjúkra-
sjóðir Baldurs og Sjómannafélags Isfirðinga stæðu að byggingunni.
Andstæðingar jafnaðarmanna gagnrýndu framlög sjóðanna harðlega
og kölluðu grunn Alþýðuhússins „þjófagryfjuna“. Byrjað var á grunni
hússins sumarið 1934 og grófu hann að mestu sjómenn með gjafadags-
verkum. Jón H. Sigmundsson byggingameistari sá um smíðina og var
húsið komið undir þak að ári liðnu. Fyrsti félagsfundur Baldurs í
Alþýðuhúsinu var haldinn í veitingasalnum í kjallaranum í október
1935 og mánuði síðar var aðalsalur hússins vígður með kvikmynda-
sýningu, laugardaginn 23. nóvember. Sýnd var myndin Syndaflóðið.50
Hannibal var allt í öllu við byggingu Alþýðuhússins. Hann varð
framkvæmdastjóri byggingarinnar og hússins til loka ársins 1938, og
bjó um tíma í Alþýðuhúsinu. Var þá starfsemi hússins orðin marg-
háttuð; kvikmyndasýningar, fundaleiga, veitingarekstur og gistileiga.
Ljóst er af gögnum Alþýðuhússins að Hannibal sinnti margháttuðum
útréttingum við efnisöflun, gjaldeyrisleyfi, vinnusamninga, fjár-
mögnun, tækjakaup og útvegun bíómynda fyrir Alþýðuhúsið og átti í
margvíslegum bréfaskiptum út um allar jarðir af þessum sökum. Bíó-
stjórinn Hannibal lagði mikla vinnu í að rekstur Alþýðuhússins stæði
undir nafni sem menningarhöll verkalýðsins.
Þegar Hannibal varð skólastjóri Gagnfræðaskólans á Isafirði árið