Andvari - 01.01.2003, Blaðsíða 31
andvari
HANNIBAL VALDIMARSSON
29
Gagnfræðaskólinn á ísafirði
Isfirðingar höfðu lengi barist fyrir stofnun gagnfræðaskóla en aldrei
náð eyrum landsstjómarinnar. Unglingafræðsla hafði þó verið starf-
rækt af bænum með styrk stjómvalda allt frá árinu 1906 í húsnæði
barnaskólans. Eftir að Alþingi samþykkti ný lög um gagnfræðaskóla í
kaupstöðum, hóf Gagnfræðaskólinn á ísafirði göngu sína, haustið
1931. Fyrsti skólastjóri hans var Lúðvíg Guðmundsson, áður skóla-
stjóri alþýðuskólans á Hvítárbakka í Borgarfirði, og gegndi hann starf-
inu til ársins 1938. Þá tók við Hannibal Valdimarsson og var skólastjóri
til 1954. Eftir að Hannibal var kjörinn á Alþingi árið 1946, gegndi
Gústaf Lárusson skólastjórastörfum í fjarveru hans, en þing sat ekki
nema hluta úr ári á þeim tíma. Sama vor útskrifaði Hannibal frá skól-
anum fyrstu nemendur með landspróf, auk gagnfræðinga. Nýtt skóla-
hús fyrir Gagnfræðaskólann var byggt við Austurveg árin 1937-38 og
hófst kennsla þar í desember 1938, en áður var aðallega kennt í hús-
næði barnaskólans.32
Hannibal var mjög farsæll skólastjómandi, vel virtur af nemendum
og kennurum, þrátt fyrir að vera umdeildur á öðrum sviðum. Ahugi
hans á menningaruppeldi æskunnar kom vel fram í störfum skólans og
ekki síður í skólabragnum; árshátíðum, skemmtunum, málfundum,
skólaferðalögum og útilegum í Birkihlíð, seli Gagnfræðaskólans í
Tungudal. Hannibal beitti sér fyrir því að komið var á fót við skólann
framhaldsdeild sem kenndi námsefni fyrsta árs menntaskólans. Var
slík deild rekin í fyrsta sinn veturinn 1949-1950. Einn af nemendum
hennar þá var Amór Hannibalsson, sonur skólastjórans.33
, Um uppbyggingu Gagnfræðaskólans, bókasafnsins og skólamál á
Isafirði sagði Hannibal í riti þar sem helstu afrek Alþýðuflokksins á
Isafirði voru tíunduð árið 1946:
Alþýðuflokksmenn telja sér það til einskis vanza, að um allmörg ár hefir Isa-
fjarðarbær varið mun hærri upphæð til fræðslumála en nokkur annar kaup-
staður sambærilegur, en hins vegar minni upphæð til löggæzlu en nokkur
annar, enda er ísafjörður friðsamur bær með afbrigðum.34
Tó að Hannibal léti af skólastjóm þegar hann var kallaður til annarra
starfa var afskiptum hans af skólamálum Isfirðinga ekki þar með lokið.
Sem þingmaður barðist hann fyrir stofnun menntaskóla á ísafirði sem
varð loks að veruleika árið 1970. Við starfslok var Hannibal aftur kall-