Andvari - 01.01.1924, Page 21
Andvari
Torfi Bjarnason
19
Með brjefi 19. okt. 1885 samþykti svo landshöfðingi
fyrgreinda ályktun amtsráðsins að gera búnaðarstofnunina
í Ólafsdal að búnaðarskóla fyrir Vesturamtið.
Hjer að framan er lauslega farið yfir sögu. þessa
búnaðarskólamáls. Má þar sjá, að nokkuð var það lengi
á döfinni og hefði sennilega orðið enn lengur, ef Torfi
hefði ekki ráðist í að setja kenslustofnunina í Ólafsdal
á fót. Má sennilega mest þakka honum það, hvað fljótt
hinir landsfjórðungarnir brugðu við að stofna búnaðar-
skóla hjá sjer.1) Voru þeir skólar að öllu leyti almenn-
ingseign og reknir fyrir almenningsfje.
Eins og Torfi bendir á í Andvararitgerð sinni, sem
áður er nefnd hjer að framan, áleit hann það jafnvel
heppilegra, að fjórðungsskólarnir væru einstakra manna
eign og að þeir væru reknir af þeim, með styrk af al-
mannafje og undir umsjón hins opinbera. Verður varla
annað sagt en að reynsla, sem þessir þrír fjórðungsskólar
gáfu, staðfesti það álit hans. Því engum sem til þekti mun
hafa blandast hugur um það, að Ólafsdalsskólinn hafi stað-
ið hinum framar um flest, og þó einkum hvað verklegu
kensluna áhrærði. Torfi hjelt því alt af fram, að fyrsta
og helsta sporið til búnaðarframfara hjer á landi, væri
það, að bændur lærðu að notfæra sjer einföld jarðyrkju-
verkfæri, svo sem plóg, herfi, hestarekur og þessháttar.
En því miður er það svo enn þann dag í dag, að allur
fjöldinn af íslenskum bændum kann alls ekki að fara
með þessi einföldu en bráðnauðsynlegu verkfæri. Allir
þeir, sem í Ólafsdal lærðu búfræði, fengu svo mikla æf-
ingu í meðferð þessara tækja og annara, sem til greina
geta komið við jarðrækt hjer á landi, að þeim var vork-
unnarlaust að ná fullkominni leikni í meðferð þeirra með
1) Hólaskóli stofnaður 1881 og Eiðaskóli 1883.