Andvari - 01.01.1924, Page 189
-Andvari
Uppruni lisla
183
um 10 000 árum f. Kr. var eldþjóðin enn þá komin
norður að Svarinshaugi í Svíþjóð. Upphaf síðari ísaldar
telja sumir 240 000 árum f. Kr., en 80 000 ár frá því
er aftur tók að þiðna.
Sumur . hluti eldþjóðarinnar fór ekki beint norður,
heldur norðaustur á Rússland, er kallaðist Svíþjóð hin
kalda. Drógu bæði löndin nafn af þjóðinni. En aðrir
þjóðflokkar kölluðu hana svinnþjóð af hugviti hennar og
eldvopnum, en það varð að Svíþjóð í framburði1)- Látum
nú þessa menn heita Svía eða Frumsvía, þótt segja megi
að það sé eigi byggt á fullum rökum. En hitt má telja
víst að Cro-Magnon mennirnir eru forfeður Indoger-
mana. Það er óhugsandi að Neanderdælir hafi breyzt í
Cro-Magnon á ekki lengri tíma, en þar er á milli, og
þetta því fremur sem það er lítt hugsandi að þeir geti
verið forfeður Cro-Magnon eða Frumsvía, hversu langur
tími sem liðið hefði á milli. En hvaðan gat þá þessi nýja
þjóð komið? Auðvitað að norðan, og einmitt norðan úr
Svíþjóð, Noregi og Danmörk. Og þótt eg vilji eigi
ábyrgjast hvern einstakan lið í því, sem eg sagði um
þroskaferil hennar, þá er eg viss um að heildin er rétt.
Leifar þær sem fundizt hafa af verkum hennar sýna
að hún hefir náð háu þroskastigi fyrir 100 000 árum.
Má því ganga að því vísu, að þá er hún kom norður
aftur, hefir hún þegar haft fullgerða heimsmynd sína og
goðheim. Þar hefir hún fært saman í kerfi endurminn-
ingar sínar am aldaaldir og auðvitað hugsað sér bæði
jarðarinnar aldur og sinn eigin aldur miklu styttri en
var í raun og veru, svo sem vísindamenn vilja nú og
1) Of djarft mundi að leiða nafnið af að svíða, sviðþjóð =
-Svíþjóð.