Andvari - 01.01.1882, Page 70
66
Um
Cadix á Spáni; á Afríkuströndum reis bylgjan og féll
18 sinnum og í Kinsale á írlandi tók sjdrinn báta og
fiutti þá upp á mitt torg bæjarins. Jarðskjálftakippurinn
fannst á Madeira 21/* stund eptir hrun Lissabonar.
Fjórum árum seinna urðu miklir landskjálftar á
Sýrlandi og béldust um þrjá mánuði. Damascus, Sidou
og Týrus eyddust, og það er jafnvel mælt að 20 þús-
undir manna haíi beðið bana í einum dal á Sýrlandi.
Á vesturströnd Suðurameríku eru landskjálftar mjög
tíðir eins og fyrr hefir verið sagt. Árið 1822 hinn 19.
nóvembor fannst jarðskjáifti um alla ströndina, hanu
var þó sterkastur í Chile. Landið íkringum Valparaiso
í Chilo hófst allt 3—4 fet; öll ströndin á Chile (um 300
mílur) 2—4 fet og upplandið 2 mílur frá sjó hófst
jafnaðarlega 4—7 fet. Sjáfarbotninn lá víðast hvarþurr
fram með ströndinni og St. Jago, Valparaiso og tieiri
bæir eydáust gjörsamlega. Sumstaðar komu Jangar
sprungur í jarðveginn, sumstaðar holur og upp úr þeim
kom sandur og Jeðja.
Annar jarðskjálfti gjörði 1835 mikinn skaða í Chile.
Hinn frægi náttúrufræðingur Charles Darwin var
þá staddur þar og segir hérumbil svo frá, hvernig hann
byrjaði: «Jeg var úti í skógi nálægt Valdivia og bafði
lagzt niður til hvíldar, þá kom kippur f 2 mínútur, en
mér fannst reyndar tíminn miklu lengri. Vér gátum
hæglega staðið uppréttir, en eg fékk þó svima af lireyf-
jngunni; hreyíingin fannst mér líkust því og að vera á
bát í kröppum sjó, eða tilfinningin var þó heldur líkari
því, er maður fer á skautum um þunnan ís, sem svignar
undir fótunum.')
Nokkrir samferðamenn Darwins voru í bænum Val-
divia, á meðan á jarðslíjálftanum stóð; þar kom mesta
hræzla yfir menn; húsin eru þar byggð úr tré og féllu
því eigi, en það brakaði í hverju tré ogallt lék á reiði-
slíjálfi. fegar þeir Darwin komu í liöfn nálægt Con-