Andvari - 01.01.1882, Síða 72
68
Um
sagði Darwin, að hann hefði verið ríðandi og eigi vitað
fyrr til, en hann ásamt hestinum allt í einu veltist um
á jörðunni; kýr, sem stóðu nálægt hömrum, ultu niður
af þeim í sjóinn, og víða hafði jarðskjálftaaldan sópað
burt fénaði og drekkt honum. Ótal smákippir fundust
eptir þenna stóra jarðskjálfta, og á 12 dögum töldu menn
300 kippi.
Darwin þótti það óskiljanlegt livernig fólk hafði
getað forðað sér undan húsum. Enski konsúllinn í Con-
ception sat við morgunverð, þegar fyrsta hreyflngin
fannst, og hljóp þegar út úr húsinu. Hann var naum-
lega kominn út, þegar hliðin á húsinu féll með braki og
brestum; hann skreið á höndum og fótum upp á efstu
rústirnar af húsinu, af því bann ímyndaði sér að þar
væri hann óhultur; þegar hann var þangað kominn, féll
hin hlið hússins; bjálkarnir fuku rétt fram hjá höfði
hans og hulinn leir og dupti komst hann út á götuna.
Hver sá sem eitthvað átti fémætt, varð að vera við hús
sitt, því alstaðar læddust þjófar að og stálu því, sem
þeir gátu; þeir börðu sér á brjóst með annari hendi og
andvörpuðu, en stálu með hinni. Stráþökin féllu niður
á eldinn á arninum og logarnir brutust upp um rúst-
irnar. Fæstir vissu hvernig þeir áttu að útvega sér
fæðu þann dag; allir lifðu í sulti og örvæntingu.
Litlu eptir jarðskjálftann kom upp að landi stór
bylgja úr 3—4 mílna fjarska með geysimiklu afli, svo
hús og tré féllu fyrir. Efst í flóanum reis upp hvít-
fyssandi brimgarður 23 fetum hærri en við mesta stór-
straumsflóð, og braut allt og skemmdi er fyrir varð.
Fallbyssa sem lá á kastalanum og óg 90 vættir, færðist
15 fet úr stað; stór skonnorta fluttist 600 fet frá strönd-
inni upp á þurt land. Eptir þessa fyrstu bylgju komu
aðrar tvær minni. Á einum stað snerust tvö skip, sem
lágu fyrir akkerum hvort íkringum annað, og akkeris-
festarnar snerust þrisvar hver um aðra og þó skipin