Andvari - 01.01.1882, Page 93
jarðskjálfta.
89
1597. Heklugos 8. janúar; fundust nokkrir landskjálftar
í Skálholti er gosið byrjaði. Hm vorið eptir
þetta gos urðu miklir landskjálftar og hrundu
margir bæir í Ölfusi. í þeim landskjálfta hrapabi
niður í grunn bærinn á Hjalla í Ölfusi. |>á
hvarf og stóri hverinn Geysir í Hveragerði fyrir
sunnan Reyki og kom upp aptur annar hver fyrir
ofan túnið á Reykjum, sem er í dag og gýs
mjög (nú [1881] liættur gosum) þó eigi sem hinn
sá stóri hafði áður gosið, því um veginn hafði
ei óhætt verið að fara, sem lá mjög nærri honum,
svo sem enn má sjá vöxt og merki til, því þar
er enn liverastæðið vítt með vellandi vatni og er
þar langur vegur á milli, sem sá Geysir er, sem
nú hefir síðan verið og áin á milliJ)-
1613. Landskjálfti sj'ðra, hrundu bæir; í þeim land-
skjálfta féll Fjall á Skeiðum að mestu. far á
hlaðinulá reiðingstorfa, sem hvarf í jarðskjálftanum,
svo hún sást ei síðan(!)* 2).
1618. Gengu alltíðir jarðskjálftar bæði dag og nótt um
haustið og fram að jólum, hröpuðu í einum þeirra
4 bæir norður í þu'ngeyjarþingi, þar sprakk jörð
sundur svo varla varð yfir komizt3).
1619. Heklugos, þá voru og landskjálftar eptir mitt
sumar4).
1624. Sífeldir jarðskjálftar frá Allraheilagramessu til
Andrésmessu og varð vart við þá lengur, féllu í
þeim 2 bæir suður í Flóa, fleiri lestust5).
‘) Sbr. Bréf Odds biskups Einarssonar til séra Böðvars Jóns-
sonar í handritasafni bókmenntafélagsins í Kaupmannahöfn
nr. 37. 8V0- bls. 294—296. AnnálarBjörns áSkarðsáll. bls. 18.
a) Ann. tíjörns á Skarðsá II. bls. 70. Esp. Arb. V. bls. 131.
3) Ann. Björns á Skarðsá II. bls. 90. Esp. Árb. VI. bls. 5.
4) Esp. Árb. VI. bls. 6.
5) Annálar Björns á Skarðsá II. bls. 118.