Andvari - 01.01.1882, Page 107
jarðskjálfta.
103
inoi í geymsluhúsi, hentist ofan á gólf, og þar
stóðu fötin á endum hér um bil V2 alin frá
því, sem þau voru áður. í jarðskjálftanum hurfu
tveir lækir, öðrum skaut upp aptur eptir nokkra
stund, en hinum ekki. Strax við byrjun jarð-
skjálftans urðu ár í nánd við Húsavík með jök-
ullit, og þó eru þær ætíð mjög tærar, einkum um
þenna tíma árs; mest bar á lit þessurn í Köldu-
kvísl og í Búðaránni; hélzt hann þangað til í
byrjun maímánaðar. Fjaran fyrir neðan Húsavík
sprakk öll í sundur, upp úr sprungunum spýttist
vatn. Mestur var jarðskjálftinn á Húsavík, en
þó fannst hann víðar; á Héðinshöfða skekktust
og hrundu að nokkru 4 fjárhús, baðstofa á Mýra-
seli hrundi að mestu, og á Núpum urðu ýms
bæjarhús fyrir töluverðum skemmdum. Jarð-
skjálftahreyfrngarnar hættu eigi með öllu, fyrr en
í maí-mánuði1). í desember-mánuði s. á. varð
vart við jarðskjálftakippi á Norður- og Austur-
landi2). 8. janúar 1873 byrjuðu eldgos í
óbyggðum fyrir norðan Vatnajökul.
1874-75. Kúmri viku fyrir jól fór að bera á jarð-
skjálftum í Mývatnssveit, og fóru þeir smávaxandi.
Ekki voru ldppirnir langir og harðir, en svo
tíðir að ekki varð tölu á komið, brakað mikið í
húsum í stærstu kippunum, og allt hringlaði
sem laust var; 2. janúar bar mest á þessu,
þá var jarðskjálfti allan daginn. Jarðskjálftar
þessir fundust mest upp til dala og fjalla,
t. d. á Möðrudal á fjöll um, en minna í út-
J) L. J. Finnbogason: Jarðskjálftarnir á Húsavík 1872
í Norðanfara II. ár 1872, bls. 52. þar stendur og, að
brennisteinsbúsin á Húsavík liafi fallið í jarðskjáll'ta 5 árum áður.
2) Norðanfari 12. ár 1873, bls. 11.