Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Page 98
172
Tímarit lögfræðinga
bætur fær hann ekki að öðrum kosti fyrir afplánun refs-
ingar að ósekju og mannorð sitt fær hann ekki hreinsað að
lögum með öðrum hætti. Ef aðili er látinn, hafa nánustu
vandamenn hans sama rétt sem hann hafði til þess að fá
mál hans tekið upp af nýju, 3. málsgr. 192. gr. Þeim er, eins
og sagt var, veittur réttur til að óska áfrýjunar samkvæmt
4. málsgr. 175. gr., ef ákærði er látinn. Er full ástæða til
þess að veita nánustu vandamönnum látins aðilja heimild
til beiðni um endurupptöku sakar, ef skilyrði til þess eru
annars fyrir hendi, til þess að hreinsa mannorð hans.
Rakin hafa nú verið aðalatriði laga nr. 27/1951 um
meðferð opinberra mála, einkum þau, sem telja má hafa
mikilvæg nýmæli að geyma. Mætti það verða til þess, að
þeir opinberir starfsmenn, sem eiga að framkvæma lögin,
ættu hægara með að glöggva sig á þeim.
í aprílmánuði 1951.
Einar Arnórsson.