Hlín - 01.01.1926, Side 25
Hlin 23
Ritari las fundargerð síðasta dags og var hún samþykt í
einu hljóði. Fundarstjóri valinn Ingibjörg Skaptadóttir.
Síðan hófust umræður um sjérmentun kvenna, þar sem
frá var horfið daginn áður, og tók frummælandi Sigur-
borg Kristjánsdóttir til máls. Vildi hún auka og glæða á-
huga manna á sjermentun kvenna f landinu. Pað væru
ekki lög eða landsstjórn sem gerðu gæfumun þjóðanna,
heldur konurnar — heimilin. .Pessvegna þurfa þær að
gera ákveðnar, rjettmætar kröfur. Skorar á konur að koma
með góðar og viturlegar tillögur í málinu. — Til máls tóku:
Ragnh. Pjetursd., Rebekka Jónsd., Steinunn Hj. Bjarnas.
Aðalbj. Sigurðard., Bríet Bjarnhjeðinsd., Margrjet Sölvad.,
Anna Ouðmundsd., Jóh. Jónsd., Ouðr. Ólafsd., Halld.
Bjarnad , Margrjet Jónsd., Sesselja Konráðsd., Kr. ólafsd.,
Jóhína Lindal. Ólíkar skoðanir á skólum landsins og
skólamálum komu fram í umræðunum.
Tillaga kom frá Kristbjörgu Jónatansdóttur og Aðal-
björgu Sigurðardóttur svohljóðandi: Annar landsfundur
kvenna skorar á forráðamenn »Kvennaskólasjóðs Herdís-
ar Benediktsen«, að þeir gefi nú þegar opinbera skýrslu
um sjóðinn, hve stór hann er, hvar hann er geymdur
og hvernig hann er ávaxtaður. Tillaga þessi var samþykt
með atkvæðum allra fulltrúa og fundarkvenna. — Margar
fleiri tillögur komu fram í málinu og var þeim öllum vís-
að til 5 kvenna netndar, er kosin var til að athuga þær,
og skyldi hún leggja fram álit sitt fyrir lok fundarins.
Pessar hlutu kosningu: Sigurbi Kristjánsd., Hansína Bene-
diktsd., Hólmfr. Pjetursd., Anna Magnúsd. og Jónína
Líndal. Málinu síðan frestað.
Eftir kaffihlje var svo Bannmálið tekið til umræðu og
hóf Ingibjörg Benediktsdóttir umræður. Taldi hún áfeng-
isnautnina þjóðarböl, og þó engu síður heimilisböl, og
þessvegna væri það tekið á dagskrá hjer sem sjermál
kvenna, treysti hún öllum konum til að sýna templurum
og bannvinum samúð og skilning, jafnvel þótt eitthvað