Hlín - 01.01.1926, Side 26
24
Hlln
greindi á um leiðirnar. Las hún því næst upp svohljóð-
andi tillögu, flutta af þessum sjö konum : Rebekku Jónsd.,
Hólmfr. Árnad., Ingibj. Skaptad., Jónínu Jónatansd., Sig-
url. Knudsen, Jónínu Líndal og Ingibj. Benediktsd.
1. 2. Landsfundur kvenna lítur svo á, að nautn áfengra
drykkja spilli heilsu manna, veiki vilja þeirra og siðferð-
isþrek, eyði tíma, fje og yndi heimilanna, og sje íslensku
þjóðinni sjerstaklega til vansæmdar, þar sem hún hefir
orðið að lúta kúgun erlends valds í áfengislöggjöf sinni.
2. Fundurinn heitir því á allar konur landsins: a) að
vinna að útrýmingu áfengisnautnar, með uppeldisáhrifum
á heimilum sínum; b) að beita áhrifum sínum innan allra
stjórnmálaflokka, til þess að knýja þingmenn og aðra
trúnaðarmenn ríkisins, til þess að fylgja og vinna af al-
efii að algerðri útrýming áfengis úr landinu.
3. Fundurinn skorar á þing og stjórn: a) að taka þeg-
ar upp við Spánverja viðskiftasamninga, er undanjjiggi
oss þeirri kvöð að leyfa eða líða innflutning áfengis til
landsins og sölu þess í landinu; b) að veita bæja- og
sveitafjelögum rjett til þess, að ákveða með almennri at-
kvæðagreiðslu, hvort þau vilji hafa áfengisútsölu eða ekki,
meðan Spánarundanþágan er í gildi; c) að nema úr gildi
heimild lyfsala og lækna, til að selja mönnum áfenga
drykki eftir lyfseðlum; d) að auka bannlaga og tollgæslu
að miklum mun.
Eftir nokkrar umræður var tillaga þessi samþykt í einu
hljóði.
Pessir töluðu í málinu: Jónína Jónatansd , Steinunn Hj.
Bjarnas., Sigurl. Knudsen, Hólmfr. Árnad., Aðalbj. Sig-
urðard., Brynleifur Tobiasson, stórtemplar, Bríet Bjarn-
hjeðinsd., Sigurb. Jónsd., Rebekka Jónsd., Soffía Jónsd.,
Sigurl. Björnsd., Hansína Benediktsd. og Steinþór Guð-
mundsson, skólastjóri.
Svohljóðandi tillaga kom frá: Steinunni Hj. Bjarnas.,
Aðalbj. Sigurðard. og Hólmfr. Árnad,