Hlín - 01.01.1926, Blaðsíða 32
30
Hlin
að kenna sig við embætti manna sinna, og spilti það
stórum málinu, tækist sá siður upp.
Tillaga frá frummælanda borin upp og samþykt með
öllum greiddum atkvæðum gegn einu, og hljóðaði
hún svo:
2. landsfundur kvenna leggur til, að allar fullorðnar
íslenskar konur, giftar sem ógiftar, sjeu nefndar og
skrifaðar frúr.
Fundi slitið.
Steinunn Hj. Bjarnason,
fundarstjóri.
Mánudaginn 14. júní var fundur settur kl, IV2 í húsinu
»Skjaldborg.« Fundarstjóri valinn þann dag: Krisbjörg
Jónatansdóttir.
Nefnd sú, er kosin var í málinu >Pjóðfjelagsleg sam-
vinna kvenna« lagði fyrir fundinn tillögu með greinargerð,
svohljóðandi: Annar landsfundur kvenna Ieggur til, að
hin ýmsu kvenfjelög út um landið stofni fasta nefnd —
hvort hjá sjer — er hafi með höndum öll þau mál, er
snerta þjóðfjelagslega samvinnu kvenna, standi þær nefndir
í sambandi við miðstöð í Reykjavík, er mynduð sje af
»Kvenrjettindafjelagi íslands« og »Bandalagi kvenna«, og
hafi hún frumkvæði þessara mála. Felur fundurinn full-
trúum sínum að gangast fyrir því, hverjum í sínu hjeraði,
að nefndir þessar komistáfót, og sendi skýrslu utn það
til formanns landsfundarnefndarinnar í Reykjavík 1926
(Bríetar Bjarnhjeðinsdóttur).
Greinargerð: Fllutverk þessara nefnda er að vaka yfir
málum kvenna bæði út á við og inn á við. Inn á við
skulu nefndirnar gera það sjálfar í fjelögum sínum og í
sveitunum utan við kvenfjelögin. Og út á við gera þær
það með sambandi sínu við miðstöðina í Reykjavík. Hún,
miðstöðin, skal hafa frumkvæðið og benda nefndunum
\