Hlín - 01.01.1926, Page 38
36
Hlin
Bjarnhjeðinsdóttir skýrði málið og taldi sjálfsagt að fund-
urinn yrði haldinn í Reykjavík 1930. Tillaga í málinu:
2. landsfundur kvenna felur »Kvenrjettindafjelagi íslands«
að hafa forgöngu um allan undirbúning fyrir næsta
landsfund, er standi í Reykjavík þjóðhátíðarárið 1930.
Svohljóðandi tillaga samþykt í einu hljóði:
Fundurinn vill sýna riturum sínum það traust, að þeir
Ijúki fundargerð þessa dags síðar, þar eð hún getur ekki
orðið fullgerð áður en fundi er slitið.
Tillögumaður: Rebekka Jónsdóttir.
Samþykt að fundargerð 2. landsfundar kvenna verði
prentuð eins fljótt og auðið er, og send öllum fulltrúum
þeim, er fundinn sóttu, og sömuleiðis skal hún send
öllum ritstjórum íslenskra blaða og tímarita.
í fundarlok ávarpaði Bríet Bjarnhjeðinsdóttir fundinn
með ræðu. Talaði um stefnu kvenna í landsrnálum, og
las upp kafla úr grein í Kvennablaðinu, þar sem sýnt er
fram á, hver sjeu hin helstu sjermál kvenna.
Ræðukonan bað konur standa upp í þakklætisskyni
við formann forstöðunefndar fundarins, Kristbjörgu Jóna-
tansdóttur. Að endingu flutti Kristbjörg Jónatansdóttir
nokkur þakkar- og kveðjuorð til fundarkvenna um leið og
hún sagði fundi slitið.
Konur þökkuðu fyrir ágætar viðtökur og Ijetu í ljósi
ánægju sína yfir fundinum.*
Kristbjörg Jónatansdóttir,
fundarstjóri.
Ingibjörg Benediktsdóttir, Hólmfriður Árnadóttir,
fundarritarar.
*) Fundinn sátu daglega 2—300 konur.
Ritstj,