Hlín - 01.01.1926, Síða 45
Hltn
43
um, fyrirlestrum, sýningum, kosningum, hvort heldur
heima í sveitinni eða aimennum kosningum. Allar þessar
nefndir hugsa jeg mjer svo að standi í sambandi við
eina aðalnefnd i Reykjavík, er sje nokkurskonar miðstöð
þessarar samvinnu allra kvenfjelaga landsins. Slíkri sam-
vinnu treysti jeg best til að auka víðsýni í hinum íslenska
kvenfjelagsskap og gera konur hæfari til að standa saman
um áhugamál sín.
Skýrslur frá fjelögum.
Kvenfjel. Skefilsstaðahrepps í Laxárdal í Skagafjs.
Fjelagið var stofnað árið 1908 af 15 konum. — Til-
gangur fjelagsins er að gleðja og styrkja fátæka eftir því
sem efnin leyfa, og hefir það mestmegnis verið gert með
því að gefa Fatnað og annað það sem mest þörf var
fyrir í það og það skiftið,
Einum fátækling gaf fjelagið kú. Eitt sinn gaf það
fátækri konu, sem lá á spítala, dálitla peningaupphæð, og
nú síðastliðið vor gaf það fjölskyldu, húsmóðurinni og
4 börnum, alfatnað. — Hvammskirkju gaf fjelagið Ijósa-
hjálm, sem kostaði 300.00 kr. Pá hefir það gefið nokkrar
smáupphæðir, svo sem 50.00 kr. til berklahælis og 60.00
kr. til Ijóslækninga. — Árið 1911 stofnaði fjelagið sjóð
og var stofnfjeð 30.00 kr., sem nokkrar fjelagskonur
gáfu. Sjóður þessi heitir »Minningarsjóður« og dregur
nafn af því, að 4 bestu fjelagar okkar dóu árinu áður.
Sjóður þessi er nú orðinn 962.00, og á að verja honum
til styrktar fátækum ekkjum í Skefilsstaðahreppi. Að þessu
fósturbarni okkar hlynnum við eftir mætti. Ein kona,