Hlín - 01.01.1926, Side 46
44
Hlin
Sigríður Gísladóttir á Fossi, gaf sjóðnum 100.00 kr. og
önnur kona gaf 50.00 kr.
Við síðustu reikningsskil var sjóður kvenfjelagsins
424.00 kr. og i Eimskipafjelagi íslands 75.00 kr., og eru
þá eignirnar upptaldar.
Til að afla okkur peninga höfum við oftast haldið
samkomur einu sinni á ári og þá stöku sinnum hluta-
veltur, fyrirlestra og dans; höfum við þá selt kaffi og
þessháttar, og t'engið þó nokkuð fyrir, því alt sem til
þess þurfti gáfu konur út úr búum sínum.
Okkar kærustu og ánægjuiegustu dagar eru, þegar við
komum saman á fund. Má segja með sanni, að þá er
glatt á hjalla. Við höldum fundina hjá fjelagskonum á
víxl, og er óhætt að segja, að húsmóðirin tekur þá ekki
af verri endanum. Bændurnir bjóða okkur velkomnar, og
horfa ekki í, þótt eitthvað töluvert eyðist. — En verst er,
hve erfitt við eigum með að koma saman, það er svo
langt á milli okkar, og víða ekki nema húsmóðirin ein
af konum til á heimilinu. Stundum svo langt á fundar-
staðinn, að ekki er hægt að komast heim að kvöldi, og
verður þetta til þess, að við höldum færri fundi en við
vildum. Petta dregur úr starfsemi okkar. — Árstillag fje-
lagskvenna er ein króna. - Fjelagar oftast kringum 20.
5. M.
» »
Kvenfjelagið »ArsóI« á Suðureyri í Súgandafirði,
V.-ísafjarðarsýslu.
Fjelagið var stofnað 4. janúar 1920 af 41 konu. — Til-
gangur fjelagsins er: »Að efla samvinnu meðal kvenna
í hjeraðinu, líkna bágstöddum og hrynda í framkvæmd
nytsömum fyrirtækjum, er orðið gætu hjeraðinu og kaup-
túninu til sóma, en þó skal líknarstarfsemin jafnan höfð
í fyrirrúmi.«