Hlín - 01.01.1926, Side 49
[Hlin 47
voru í fjelaginu og störfuðu í því á ýmsan hátt eins og
lögin mæltu fyrir.
Að fjelag þetta, sem stofnað er fyrir rúmum 50 árum
í afskektri sveit, hefir þótt eftirtektarvert, sjest best á því,
að í frjettabálkinum í almanaki Pjóðvinafjelagsins á ár-
unum 1870—1880, er við og við getið um starfsemi þess,
t. d. að fjelagið haldi uppi kenslu fyrir ungar stúlkur, og
að það hafi fengið irin í sveitina bæði prjóna- og sauma-
vjelar, sem þá voru að by'rja að flytjast hingað til lands-
ins. — Lög fjelagsins bera vott um, að hjer voru myndar-
konur að verki, sem ekki einungis stjórnuðu heimilum
sínum með fyrirmyndar ráðdeild og dugnaði, heldur liRa
höfðu til að bera það fjelagslyndi og göfugt og gott
hugarfar, sem þarf til þess að geta látið aðra verða að-
njótandi reynslu sinnar og þekkingar.
Eftir að kvennaskólinn var stofnaður í Húnavatnssýslu,
mun hafa farið að draga úr framkvæmdum fjelagsins, og
þegar fjelagið uppleystist, þá var sjóður þess lagður inn
í Söfnunarsjóð íslands, og heitir hann »Styrktarsjóður til
menningar ungum stúlkum í Svínavatnshreppi«.
Reykjavík 10. maí 1926.
Guðrún /. Briem.
L0G
Kvenfjelagsins í Svínavatnshreppi.
1. gr,
Pað er tilgangur fjelagsins að efla allskonar framför
kvenna í Svínavatnshreppi með skrift, reikningi, þrifnaði,
reglusemi í hússtjórn, barnameðferð, allri ullarvinnu, vefn-
aði, saumaskap, mjólkurmeðferð og matartilbúningi, yfir-
leitri einnig hagfræðilegrar meðferðar á öllum heimilis-
föngum.