Hlín - 01.01.1926, Blaðsíða 77
Hlin
75
síðustu sýningu. Fjelögin í hverju hjeraði ættu að kjósa
sjer 2 menn — karl og konu — til að taka þarna að
sjer atlar verklegar framkvæmdir: fara með muni á sýn-
inguna, koma þeim þar fyrir, annast um þá meðan
sýningin er opin, selja það, sem selja á, en hafa hitt
heim með sjer. — Fjelögin stæðu, eins og gefur að
skilja, straum af ferð þessara fulltrúa, enda yrði það víða
hmn eini beini kostnaður, sem fjelögin hefðu af þjóðhá-
tíðinni, og væri þeim því engin vorkunn á að bera
hann. — Jeg efast ekki um, að hverju hjeraði yrði það
hið mesta metnaðarmál, að sýningin sín yrði ekki lítil-
fjörlegust eða hjeraðinu til minkunar. — Jeg geri ráð
fyrir því sem sjálfsögðu, að hvert hjerað hafi herbergi
útaf fyrir sig á landssýningunni; þá kemur það best í
Ijós hvað hver sýsla hefir til brunns að bera í þeim efn-
um. — Jeg trúi ekki öðru en að það auki hverju hjeraði
metnað að eiga sem mestan og bestan þátt í þeirri sam-
keppni. — Vel valdir fulitrúar gætu unnið þessu máli
hið mesta gagn, og það því meir sem þeir yrðu fyr
kosnir. (Helst ætti að kjósa þá þegar á þessu ári). Peir
hvettu til sýningahalds og eggjuðu almenning til að taka
þátt í þeirri samkeppni, færu milli hreppasýninganna og
veldu það besta úr á hverri sýningu, og fengju þannig
nokkurt yfirlit.
Pað, sem sent yrði á landssýninguna, yrði á þennan
háti nokkurnveginn samfeld heild, en ekki einhliða úrval,
t.d. eintóm langsjöl, því þótt það geti verið góð vinna í
sjálfu sjer, gefur það enga sanna eða rjetta mynd af
vinnubrögðum hjeraðsins. — Nei, sem allra fjölbreyttust
þarf sýningin að vera og engu síður karla en kvenna
vinna. Alt sem nöfnum tjáir að nefna til fatnaðar, rúm-
fatnaðar og híbýlabúnaðar, verkfæri, áhöld og amboð,
leikföng og skartgripir. Alt |aarf að koma þarna fram
sem til er, og sem best útlítandi, svo þjóðin geti fylli-