Hlín - 01.01.1926, Page 91
Hlln
89
Uppeldismál.
Eðli og hlutverk kvenna.
Erindi flutt á bændanámsskeiði á Egilsstöðum í mars-mán.
veturinn 1926 af Sigrúnu Pdlsdóitur Blöndal.'
Pað er kunnugra en frá þurfi að segja, að 19. öldin
var mikil framfaraöld á mörgum sviðum. En venjulega
eru rætur þeirra framfara, að minsta kosti á sviði þjóð-
fjelagsmálanna, raktar til stjórnarbyltingarinnar miklu
á Frakklandi í lok 18. aldar. Sú bylting mat upp ýms
verðmæti fortíðarinnar, »vóg þau og fann ljettvæg«
Og þetta átti sjer ekki stað á einu sviði, heldur mörgum.
Hvergi var þó byltingin eins gagnger og á þjóðfjelags-
skipuninni. Hún gerbreytti hugmyndum manna um vald-
ið. Tók það af einvaldshöfðingjanum og afhenti það þjóð-
inni, þ. e. hverjum einstaklingi. Ef Lúther hefði ger*
hvern einstakling að sínum eigin presti á sviði andlegs
lífs, þ. e. a. s. gert samvisku einstaklingsins að mæli-
kvarða góðs og ills, þá gerði nú stjórnarbyltingin hann
að sínum eigin herra á sviði véraldlegs valds.
Pessa hugmynd um valdið tók 19. öldin í arf. Eitt
hlutverk þeirrar aldar varð að bera fram til sigurs hug-
sjónir stjórnarbyltingarinnar miklu um Jrelsi, jafnrjetti og
brœðralag.
Ef skilið er við frelsi minst möguleg höft á athöfnum
einstaklingsins, og við jafnrjetti almennan kosningarrjett
og jafnan aðgang að gæðum lífsins, verður ekki annað
sjeð, en að 19. öldinni hafi tekist vel. Öðru máli er að
gegna um bræðralagshugsjónina. Þó vísindalegar upp-
götvanir aldarinnar brúuðu betur en nokkru sinni áður
fjarlægðir manna á milli í rúminu og sköpuðu með því
betri skilyrði til kynningar og bræðralags, þá verður ekki
annað sjeð en að þjóðir og ríki sjeu fjær þessari hug-