Hlín - 01.01.1926, Page 102
100
Hlin
framþróun mannsins. Öll þessi hréifing verður mjer
miklu skiljanlegri út frá vjelgengri lífsskoðun.
III.
En þetta er aðeins annar þáttur kvenfrelsishreyfingar-
innar. Eftir er að minnast á annan þátt hreyfingarinnar,
sem runninn er af praktiskum rótum og gerði hana að
knýjandi þörf og sögulegri nauðsyn. En það er atvinnu-
þörf kvenna í þeim löndum álfunnar, sem urðu aðal-
stöðvar stóriðnaðarins. Pessi atvinnuþörf kemur fyrst fram
á Englandi og stendur í nánu sambandi við hina svo-
kölluðu iðnaðarbyltingu þar. Sú bylting hafði í för með
sjer gagngerða breytingu á atvinnulífi þjóðarinnar. Heim-
ilisiðnaður og heimaiðnaður hvarf að miklu leyti úr sög-
unni, þvi hann gat ekki kept við stóriðnaðinn, er tók nú
vjelarnar í sína þjónustu. Konur, sem hvorki áttu heimili
eða börn og höfðu lifað af heimilisiðnaði, stóðu nú hönd-
um uppi. Og þetta var mikill fjöldi kvenna. Eins og þið
vitið eru konur fleiri en karlar. Til þess liggja margar
orsakir. En liklega á hin gamla verkaskifting karla og
kvenna mestan þátt I því. Störfum karla er mörgum hverj-
um svo háttað að lífshætta fylgir. Parf ekki annað en að
minnast þess, að á herðum þeirra hafa hvílt landvarnir
og hermenska frá því sögur hefjast. Pá má og nefna sjó-
mensku. Auk þess telst mönnum til að fæðist fleiri kon-
ur en karlar.
Af öllum þessum ástæðum hefir fjöldi kvenna ekki get-
að eignast heimili og voru því neyddar til að leita sjálf-
stæðrar atvinnu. Pegar vjelarnar voru teknar í þjónustu
iðnaðarins, varð mikill hluti þessara kvenna atvinnulaus.
Og þessi byiting hafði líka í för með sjer, að tala þeirra
kvenna jókst, sem urðu að leita sjálfstæðrar atvinnu. því
nú varð erfiðara fyrir karlmenn að vinna fyrir fjölskyldu.
Peim mönnum fækkar, sem höfðu efni á að giftast. En
að sama skapi fjölgar atvinnulausum konum.