Hlín - 01.01.1926, Page 163
Hið íslenska Fræðafjelag í Kaupm.höfn
gefur út ágætar bækur, sem hver fróðfeiksfús maður þarf
að eignast. Pær eru iagaðar eftir þörfum almennings, og
allur frágangur á þeim hinn vandaðasti. Verðið er að til-
tölu lægra en á nokkrum öðrum íslenskum bókum, er
komið hafa út á síðustu árum. Hinar bestu alþýðubækur
Fræðafjelagsins eru:
Ársrit hins íslenska Frœðafjelags. Tíundi árgangur
kemur út í sumar, fjölbreytt efni að vanda. F*etta tímarit
er talið eitt hið besta og margbreyttasta, sem út hefir
komið á íslensku.
Safn Frœðafjelagsins um ísland og íslendinga. 1. og 2.
bindi af Minningabók Porvalds Thoroddsen, verð 7 kr.
hvort. 3. bindi: Fjórar ritgerðir eftir Þorvald Thoroddsen,
þar á meðal rækileg saga eldgosa í Vatnajökli og saga
fiskiveiðanna við ísland. 4. bindi: Magnús Stephensen,
Brjef til Finns Magnússonar leyndarskjalavarðar. Verð 4
kr. hvort. 5. bindi: Jón Helgason, Jón Ólafsson frá
Orunnavík. Verð 12 króniir. — Nýir fastir kaupendur að
öllu þessu safni geta fengið 1. og 2. bindi fyrir 10 krónur
bæði. — Allir fróðleiksmenn ættu að gerast fastir áskrif-
endur að ritum þessum.
Endurminningar Páls Melsteðs, verð 2 kr. 50 au. Brjef
hans til Jóns Sigurðssonar, verð 2 kr.
Islenskt málsháttasafn, lífspeki hinnar íslensku þjóðar;
verð 12 kr.
Handbók i Islendingasögu; verð 3 kr. 75 au.
Pislarsaga síra Jóns Magnússonar; verð 5 kr.
Allar bækurnar eru taldar í ársritinu og í Safni Fræða-
fjelagsins. Umboðsmenn á íslandi eru Bjarni Jónsson
bankastjóri á Akureyri, Pjetur Jóhannsson bóksali á Seyð-
isfirði, Jónas Tómasson bóksali á ísafirði og Arinbjörn
Sveinbjarnarson bóksali í Reykjavik.