Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1955, Blaðsíða 66
48
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
I did not know thee, yet I knew that they
Amidst thy mountains sights had seen their God
In sacredness and grandeur; still they pay
A steadfast worship to the strands they trod.
I did not know thee, yet a diadem
On justice-furbished Freedom thee I thought
More precious far than is earth’s fairest gem
Because thou wert by worthy effort bought.
I did not know thee, yet my dreams of thee
Midst dark of night or glare og gaudy day
Burnished my wish to watch the galaxy
Of glorious sights thy sea and shores display.
í óbundnu máli liggur og mikið
eftir Skúla. Er þar fyrst að telja
fræðigreinar, sem birzt hafa í mörg-
um tímaritum, um ýmislegt í klass-
iskum bókmenntum. Þá reit Skúli
margt um íslenzk mál, bæði
íslenzkar bókmenntir og sérstaklega
um ýmsa þætti úr sögu og bók-
menntun Vestur-íslendinga, og er
margt af því prentað í Icelandic
Canadian. Skúli annaðist ritstjórn
bókarinnar Iceland's Thousand
Years, sem er safn af fyrirlestrum,
er Þjóðræknisfélagið og Icelandic
Canadian gáfu út, en voru upphaf-
lega fluttir á kvöldskóla hér í Win-
nipeg, er Icelandic Canadian Club
starfrækti.
Skúli kvæntist árið 1921 Evelyn
Margaret Truesdale, konu af írskum
ættum. Þau hjónin eignuðust tvo
sonu. Sá eldri Harold Alexander
Craigie (þeir Sir William Craigie og
Skúli urðu miklir vinir á þeim árum,
sem Skúli var í Oxford) er jarðfræð-
ingur að menntun, en vinnur nú hjá
Great West Life Assurance Com-
pany. Hinn yngri, Richard, er út-
skrifaður í rafmagnsverkfræði og
hefur nýlega verið skipaður kennari
við verkfræðideild Manitoba há-
skóla. Er gott til þess að vita, að
hann hefur þannig fetað í fótspor
föður síns sem kennari, þótt í ann-
arri grein sé.
Með Skúla Johnson er til grafar
genginn góður drengur. Það er skarð
fyrir skildi í fylkingum Vestur-
íslendinga. Manni finnst eitthvað
vanta í sali háskólans, þar sem hans
hreimmikla rödd heyrist ei lengur-
En áhrifa hans gætir enn hjá þeina
hundruðum nemenda, sem laerðn
hjá honum að meta hin sígildu verð-
mæti grískra, latneskra og íslenzkra
bókmennta og hjá öllum þen11
fjölda vina, sem þekktu og dáðu
mannkosti hans.
Orðstír deyr aldregi
hveim er sér góðan getr.