Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1955, Side 91
OPT VERÐUR LÖNG SAGA AF LITLU STRÁI
73
Margir hafa skoðað íslenzkar
jurtir síðan Stefán Stefánsson safn-
aði grösum ungur maður fyrir alda-
mót, °g margt er nú ljóst, sem þá
var hulið. Þótt ekkert jafnstórt
svæði í Ameríku sé jafnvel þekkt
grasalega, er enn ekki sjaldgæft, að
áður óþekktar jurtir finnist hér og
hvar á íslandi. En þótt enginn hafi
fundið fleiri tegundir á landinu í
xyrsta sinn en Stefán og enginn hafi
iitið fleiri merkar jurtir þar fyrstur
grasafræðinga, er vafasamt, hvort
ann sá þar nokkra jurt merkari en
villihveitið, sem við hann mun
kennt svo lengi sem grasavísindi
verða iðkuð. Hefði hann skilið gildi
þessara grasstráa, myndi hann hafa
getað sagt með Símeoni: Lát nú,
herra, þjón þinn í friði fara. Hann
hafði fundið hið gyllta skinn, egg
fuglsins Fönixar, hina merkustu
meðal íslenzkra jurta, en vissi ekki,
að hann hafði lifað óskastundina.
Og það liðu sex áratugir áður en
nokkur skildi, að Stefán lifði aldrei
merkari dag en þá stund í júlílok
sumarið 1895, er hann fór um
brekkurnar ofan við Valþjófsstaði í
Núpasveit norður.
fAKOBÍNA JOHNSON:
Henry Goddard Leach
Ph.D„ LL.D„ Liii.D.
Þess var víða getið á síðastliðnu
sumri, er hinn nafnkunni vinur og
a smaður Norðurlanda, Dr. Henry
oddard Leach, átti 75 ára aldurs
3 ^æk. Þess var að sjálfsögðu sér-
1 a^lega minnst af American
oandinavian Foundation. Dr. Leach
ar í stjórnarnefnd félagsins í 40
>r’ 1912—1952, gegndi helztu em-
® tum þess á víxl, þar með rit-
^lorn tímaritsins er það gefur út.
í wter. ^ann keiðursforseti, og á sæti
,-tjórna, og bókaútgáfunefnd. —
stefS °g- flestum mun kunnugt, er
eittnrÍð start félagsins það
o etta kynningu Bandaríkjanna
insN°rðurlanda á grundvelli menn-
áttu^ mennta> samúðar og vin-
skriffr hlnar nýíu °S fullkomnu
tofur félagsins í New York
borg voru formlega opnaðar um
vorið 1952, voru þau hjónin Dr. og
Mrs. Leach sæmd heiðursmedalíu:
The Scandinavian Gold medal. —
Sá atburður var tákn þess þakk-
lætis og þeirrar virðingar, sem
hugsandi fólk víðsvegar óskaði að
votta þeim fyrir þann mikilvæga og
aðdáanlega þátt er þau eiga í því
að djarfir draumar stofnenda og
velunnar A. S. F. hafa ræzt.
Henry Goddard Leach er fæddur
3. júlí 1880 í borginni Philadelphia.
Þar var faðir hans starfandi læknir.
í ættir fram hefur fólk hans átt
heima í Ný-Englands ríkjunum.
Móðurfólkið er frá Wiltshire á Eng-
landi, og rekur ættir sínar til nor-
rænna manna á eyjunni Mön. For-
feðurnir í föðurætt fluttust til Eng-
lands með Vilhjálmi frá Normandý.