Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1955, Síða 118
100
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
heimi“ og „Mannalát“, er mörgum
myndi mikil eftirsjá að, vegna fróð-
leiks- og sögulegs gildis þeirra.
Ennfremur hefir Gísli ritstjóri óskað
eftir því, að greinarhöfundur fylgdi
þeim þáttum úr hlaði að þessu sinni
með stuttorðri frásögn um Alman-
akið frá upphafi vega þess og til
leiðarloka. Mjög verður þó stiklað
á stærstu steinum í þeirri greinar-
gerð hér, bæði vegna takmarkaðs
rúms og eins hins, að höfundur hefir
áður rakið þá sögu all ítarlega í
fimmtugasta og sextugasta árgangi
Almanaksins sjálfs (1944 og 1954),
og vísast þangað til fyllri frásagnar
um það efni.
Langt er síðan menn gerðu sér
það ljóst, hve mikla framsýni og
ágæta þjóðrækni í verki Ólafur S.
Thorgeirsson sýndi með því að efna
til útgáfu Almanaksins sem heildar-
rits um sögu íslendinga í Vestur-
heimi fyrir 60 árum síðan, en eins og
sjá má af formálsorðum hans að
fyrsta landnámsþættinum, er út
kom í Almanakinu 1899, gerði hann
sér þá þegar glögga grein fyrir fram-
tíðargildi slíks heimildasafns. Var
þessi viðleitni hans einnig í fullu
samræmi við skapgerð hans að öðru
leyti, fróðleikshneigð hans og þjóð-
lega hugsun, sem lýsti sér jafnframt
í þátttöku hans og forystu í vestur-
íslenzkum félagsmálum og í bóka-
útgáfu hans og tímarita, er einnig
var hin athyglisverðasta. Hann stóð
djúpum rótum í íslenzkum menn-
ingarjarðvegi, og er það táknrænt
um djúpstæðan ræktarhug hans til
ættjarðarinnar, að hann valdi mynd
Fjallkonunnar öndvegissess á kápu
Almanaksins og kaus því að eink-
Ó. S. Thorgeirsson
unnarorðum ásthlýjar og ódauðlegar
ljóðlínur „listaskáldsins góða“:
Þið þekkið fold með blíðri brá
og bláum tindi fjalla,
og svana hljómi, silungsá
og sælu blómi valla
og björtum fossi, björtum sjá
og breiðum jökulskalla —- ,
drjúpi’ hana blessun drottins a
um daga heimsins alla!
Annars er Ólafi og þjóðnýtu æV1.
starfi hans ágætlega lýst í ítarleg^
minningargrein ,sem dr. Rögnval
Pétursson ritaði um hann í A-lrnaI1
akið 1938, en ólafur lézt árið áðu •
Hafði hann óslitið verið bseði u ,
gefandi og ritstjóri Almanaksins
meir en 40 ár, og því öllum írerni >
sem þar koma við sögu, g
stefnu ritsins og sett svip sinn a P
að öðru leyti.