Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1955, Side 132
114
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
ins canadiska (“The Canadian
Weekly Newspaper Association”) á
ársfundi þess í Vancouver, B.C.
18. sept. — Séra Ólafur Skúlason
settur inn í embætti sem prestur ís-
lenzku safnaðanna í Norður-Dakota
af dr. Valdimar J. Eylands, forseta
Lúterska kirkjufélagsins.
Sept. — Á því sumri ferðuðust
þeir Kjartan Ó. Bjarnason, kvik-
myndatökumaður frá Reykjavík, og
prófessor Finnbogi Guðmundsson
um byggðir íslendinga beggja megin
landamæranna í þeim erindum að
taka kvikmynd af byggðum þeirra,
lífi og starfi; héldu þeir félagar
jafnframt samkomur á mörgum
stöðum.
2. okt. — Séra Bragi Friðriksson
settur inn í embætti sem prestur
lúterska safnaðarins að Gimli af
forseta Kirkjufélagsins.
8. —9. okt. — Dr. Richard Beck,
forseti hinnar erlendu tungumála-
deildar ríkisháskólans í N. Dakota,
var einn í hópi átján háskólakenn-
ara, er sátu sérstaka ráðstefnu í
þeim fræðum í New York borg í
boði Allsherjarfélags tungumála-
kennara í Bandaríkjunum (“The
Modern Language Association of
America”).
9. okt. — Séra Haraldur S. Sigmar,
áður prestur íslenzka safnaðarins að
Gimli, settur inn í embætti sitt sem
presutr lúterska safnaðarins í
Kelso, Wash.
13. okt. — Átti dr. S. E. Björnsson
skáld sjötugsafmæli; hann hefir
tekið mikinn þátt í vestur-íslenzk-
um félagsmálum, bæði kirkju- og
þ j óðræknismálum.
Okt. — W. H. Finnbogason skip-
aður umferðaverkfræðingur (“City
Traffic Engineer”) Winnipegborgar.
Okt. — Dr. Carol J. Félsted, Van-
couver, hlaut verðlaunaskjöld fyrir
skartgripateikningu í víðtækri lista-
samkeppni í Bandaríkjunum. Fyrú
ári síðan hlaut hún doktorsnafnbot
í listasögu á Parísarháskóla.
Okt. — Dr. Percy Johnson, læknir
í Flin Flon, Man., kjörinn forseti
Læknasambandsins í Manitoba
(“The College of Physicians and
Surgeons”) á sjötugasta ársþing1
þess.
Okt. — Kom út í Winnipeg mikið
rit og merkilegt um íslendinga 1
Saskatchewan, The Saskatchewan
Icelanders, eftir Walter J. Lindal
dómara, sem vakið hefir mikla at-
hygli og hlotið lofsamlega dóma.
Okt. — Dr. P. H. T. Thorlakson
kosinn heiðursforseti Stúdentafélags
(“The Alumni Association”) Mam-
tobaháskóla.
Okt. — Dr. E. T. Félsted, Van-
couver skapaður aðstoðar-prófessor
í læknisfræði við Oregon-háskólann-
Okt. — Á því hausti var pr>
Sveinbjörn Stefán Björnsson ráðin11
“State Medical Examiner” í De a
ware-ríki með búsetu í Wilmingi°n’
Del.
26. okt. — Við bæjarstjórnarkosn'
ingar í Winnipeg var Paul
Goodman endurkosinn í
stjórn og Paul Thorkelson í skólara
Nóv. — Skúli Sigfússon, fyrrJg
þingmaður St. George kjördaemisi
um langt skeið, kosinn lífst1
heiðursfélagi Liberal-Progress^
stjórnmálasamtakanna á ársþ1
þeirra í Winnipeg. ,
4. des. — Sjötíu og fimm ára ®
mælis Garðar-safnaðar í N°r ,,
Dakota minnst með sérstakri