Hugur - 01.06.2010, Page 221
Frá stjórn Félags áhugamanna um heimspeki
Frá því að pistill frá stjórn félagsins birtist síðast, þ.e. í Hug 2008, hefiir félagið staðið
fyrirýmsum viðburðum. Meðal þeirra helstu má nefna fyrirlestraröðina Byltingarmenn
vísindanna sem efnt var til í minningu Þorsteins Gylfasonar með góðum stuðningi frá
vclgjörðarmanni félagsins, Halldóri Friðriki Þorsteinssyni. I röðinni voru fluttir fimm
fyrirlestrar, sá fyrsti 7. mars 2009 og sá síðasti 4. apríl 2009. Fyrirlesarar voru Halldór
Guðjónsson, Þorsteinn Vilhjálmsson, Kamilla Rún Jóhannsdóttir, Guðmundur Egg-
ertsson og Eyja Margrét Brynjarsdóttir. Ungir heimspekingar/heimspekinemar, þau
Elmar Geir Unnsteinsson, Finnur Dellsén, Gunnar Júlíus Guðmundsson og Hrönn
Guðmundsdóttir, báru hitann og þungann af umsjón raðarinnar. Við í stjórninni ber-
um til þeirra mikinn þakkarhug fyrir ósérhlífni og vel unnin störf. Halldór Friðrik á
einnig mikinn heiður skilinn fyrir rausnarskap sinn og stórhug.
Þá má nefna fundaröð sem félagið efndi til á fyrstu mánuðum ársins 2009 undir
yfirskriftinni Heimspekingar ræða kreppuna. I þeirri röð voru haldnir fjórir fundir og
fyrirlesarar voru Olafur Páll Jónsson, Páll Skúlason, Halldór Guðjónsson, Jón Asgeir
Kalmansson, Stefán Snævarr, Eyja Margrét Brynjarsdóttir og Sigríður Þorgeirsdótt-
ir. Málping um kínverska heimspeki var svo haldið 16. maí 2009 í tilefni af útkomu
2008-heftis Hugar, sem einmitt var helgað kínverskri heimspeki. Einnig skal nefnt að
Jóhann Björnsson hélt fyrirlestur á vegum félagsins 15. október 2009 undir yfirskrift-
inni „Hvenær hefur maður nóg með sig og hvenær er maður aflögufær?“ og fjallaði
þar um málefni flóttamanna og hælisleitenda. Síðast en ekki sfst ber að nefna að á
aðalfundi félagsins 14. nóvember 2009 var samþykkt að gera Pál Skúlason að heið-
ursfélaga. Þann 10. desember 2009 var haldin samkoma af því tilefni á veitingahúsinu
Sólon, efri hæð, þar sem félagsmönnum gafst kostur á að gleðja heiðursfélagann nýja
með jmsum hætti.
Á áðurnefndum aðalfundi í nóvember 2009 varð sú breyting á stjórn félagsins að
Pétur Gauti Valgeirsson gekk úr stjórn eftir margra ára starf sem formaður og gjald-
keri, og eru honum færðar hugheilar þakkir fyrir ósérhlífnina. I stað hans var Njörður
Sigurjónsson kjörinn í stjórn, og var hún þá þannig skipuð: Björn Þorsteinsson for-
maður, Njörður Sigurjónsson gjaldkeri, Kristín Hildur Sætran ritari, Margrét Elísabet
Olafsdóttir meðstjórnandi og Egill Arnarson varamaður. Á nýafstöðnum aðalfundi 4.
desember 2010 urðu síðan frekari breytingar á stjórn. Undirritaður lét af störfum og
það gerði einnig Kristín Hildur Sætran ritari, sem verið hefur í stjórn félagsins frá
2004 og fær hjartans þakkir fyrir dugnað í þágu heimspekinnar á Islandi. Nú er stjórn
félagsins skipuð sem hér segir: Egill Arnarson formaður, Ægir Karl Ægisson ritari,
Njörður Sigurjónsson gjaldkeri, Margrét Elísabet Ólafsdóttir meðstjórnandi og Jakob
Guðmundur Rúnarsson varamaður.
Eyja Margrét Brynjarsdóttir lætur nú af störfum sem ritstjóri Hugar og færir
stjórnin henni bestu þakkir fyrir vel unnin störf. Henry Alexander Henrysson verður
næsti ritstjóri og hefur þegar hafist handa; er hann hér með boðinn formlega velkom-
inn í ritstjórastólinn.
F.h. stjómar FÁH
Björn Þorsteinsson,
fráfarandiformaður