Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.01.1988, Page 139

Tímarit Máls og menningar - 01.01.1988, Page 139
og boði kreddur þeirra" (164). Voru þessir dóiga-marxistar þá með einhvers konar félag? Eða hverjir heyrðu til hópi þeirra ef ekki þeir menn sem aðhylltust og boðuðu kreddur þeirra? Nokkru fyrr ræðir Sigurður um „óhagganlega tryggð [Halldórs] við það dólga- marxíska (stalíníska) hugmyndakerfi sem skilgreinir sósíalisma og kapítal- isma nokkurn veginn nákvæmlega eftir fyrirmynd miðaldaguðfræðinnar" (151). Um fylgispekt skáldsins við dólgamarx- isma fer því tvennum sögum í bókinni; og sýnist sú skýring líklegust að Sigurð- ur viti ekki nógu glöggt við hvað hann á með hugtakinu. Þá má nefna að kaflafyrirsagnir í bók- inni eiga sýnilega að vera skáldlegar en eru ýmist ósmekklegar eða missa marks. Sigurður velur orðin „Berjand- isk og bölvandisk" til að lýsa fyrstu skrifum Halldórs Laxness í anda sósíal- isma, en þessi orð eru höfð um hrúta Bjarts í Sumarhúsum. Þau eiga illa við um Halldór, eru hvorki fyndin né lýs- andi. Kaflinn um tímabilið 1934—38 nefnist „Með hjartsláttinn í augunum" og er það skýrt svo: I Sjálfstæðu fólki segir frá því á ein- um stað að Asta Sóllilja hrekkur við undan ávarpi Bjarts bónda, „. . . horfir á hann óttaslegin, með hjart- sláttinn í augunum, og grípur and- ann á lofti . . .“ Ekki ósvipuð er af- staða Halldórs til fasismans“ (80). Kaflinn fjallar einkum um afstöðuna til Sovétríkjanna, ekki fasismans, og vand- séð er á hvern hátt ótti Halldórs við fas- isma hafi verið sambærilegur við ótta hinnar sakbitnu Ástu Sóllilju við Bjart stjúpa sinn. Þá er titillinn „Maður á ekki að vera vondur við þann sem hefur verið sleginn" á kafla um Gerska æfin- týrið ekki heldur smellinn. Allir meginkaflarnir hefjast á þætti sem nefnist „Kynning" og sumir enda á „Niðurlagi" eins og tíðkast í samvisku- samlega unnum skólaritgerðum; þar verður lesandinn feginn að höfundur stillir málskrúði sínu í hóf, þótt slíkar fyrirsagnir séu að sínu ieyti með bragð- daufasta móti. Á einum stað kallar Sigurður I Aust- urvegi ferðabók (það hefur Erik Sönd- erholm einnig gerð áður), en ég tel að hana beri frekar að skoða sem ritgerða- safn. I bókinni eru fjórar greinar auk formála. Fyrst er inngangur, svo löng heimildaritgerð, þá ferðaþáttur og loks útvarpsræða. Ferðasagan er aðeins um þriðjungur af þessari 158 blaðsíðna bók, sem Sigurður nefnir bókarkríli (70). Oðru máli gegnir um Gerska æfintýrið; það er ferðabók. I tveim tilvikum ræðir Sigurður ankannalega um „lífið". „Halldór tignar lífið [. . .]“ (75) segir hann. Og: „hann hefur reist sjálfum sér og þjóð sinni óbrotgjarnan minnisvarða sem standa mun síst skemur en Lífið" (177). Heldur eru slíkar yfirlýsingar hjárænulegar. Hæpið er að minnisvarði skáldsins standi lengur en lífið á jörðinni. Þá er ennfremur hvimleitt hvernig Sigurður notar orðið skynreynsla, sem yfirleitt merkir aðeins reynsla hjá hon- um (sjá bls. 46, 71, 93, 101, 114). Sig- urður gerir það reyndar að sérstöku umræðuefni að eigin skynreynsla Halldórs af ákveðnu fyrirbrigði eða ástandi hafi valdið breytingu á afstöðu hans og/ eða endanlega sannfært hann um gildi ákveðins viðhorfs - sé reynslan TMM IX 129
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.