Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1992, Síða 31
Ferming í fjórar aldir
Annað atriði tengt fermingu, þó að með ólíkum hætti væri, var
ónæmisaðgerð við kúabólu, bólusetningin. Fyrrum var það ein af
embættisskyldum sóknarpresta að bólusetja við kúabólu.84
Fram undir seinustu aldamót fengu þeir fræðslu hjá heilbrigðis-
yfirvöldum um, hvemig þeir skyldu haga sér við bólusetningar. Varð
þvílíkri fræðslu gjaman komið við, er þeir sóttu prestastefnu til
Reykjavíkur. í lögum um bólusetningu frá öndveðri öldinni85 segir, að
ekki megi ferma bam nema það sanni fyrir presti með vottorði, að það
hafi verið bólusett við kúabólu eftir að það varð 8 ára eða það hafi haft
bólusótt. Prestur, sem brýtur ákvæði þetta, sætir sektum.86 Sambærileg
ákvæði um ábyrgð presta vom í nýrri lögum um ónæmisaðgerðir.87 Þessi
lög hafa nú verið niunin úr gildi með lögum 1978.88 Þar segir, að fólki
skuli „gefinn kostur á“ ónæmisaðgerð við bólusótt „eftir því sem þörf
krefur“ 2. gr. í reynd em fermingarböm því ekki bólusett framar, enda
bólusótt að kalla útrýmt í heiminum.
VII
Af tilskipunum þeim og konungsbréfum, sem vitnað var í hér að framan,
er sýnt, að tryggilega hefir verið gengið frá öllu. Um þetta nám á
upphafsskeiði skyldufræðslu má annars segja það, svo sem raunar hefir
komið fram beint og óbeint, að það fór fram í heimahúsum og kirkjunum
og miðaði að því að nema Fræðin, þ.e. Fræði Lúters hin minni, helzt utan
bókar og kverið og kimna einstök ritningarorð tilgreind í því utan bókar.
Bænir og vers lærðu bömin einnig. Kverið var raunar fyrst og fremst
skýringar á fræðum Lúters og efnið iðulega sett fram í formi spuminga
og svara við þeim. Þar af kemur heitið spumingar eða bamaspumingar í
merkingunni fræðsla til undirbúnings fermingu. Vaxandi áherzla er lögð
á lestur, en raunar lengi vel fyrst og fremst til þess eins að auðvelda nám
í fræðunum svo og til lestrar guðsorðabóka.
Ekki verða öll böm allæs á svipstundu, eins og nærri má geta. En
þegar árið 1758 þykir sæta furðu, að 2 böm skuli hafa verið fermd ólæs,
svo að Finnur Jónsson Skálholtsbiskup ritar umsjónarráði kirkna um
málið 1. ágúst 1759. Svar umsjónarráðsins dagsett 10. apríl 1760 er á þá
lund, að biskup rannsaki, hvemig þvílíkt og annað eins hafi getað komið
fyrir. Unglingar verða skilyrðislaust að vera læsir, enda skulu þeir ekki
fermdir að öðmm kosti.89
í kgbr. til Hannesar Finnssonar Skálholtsbiskups 2. júlí 1790 segir, að
öll böm skuli byrja að stafa áður en þau verða 5 ára. Ef foreldrar sinna
84 Kgbr. 18. júlí 1821, (Lovs. VIII, 266-269);
kgbr. 24. marz 1830, (Lovs. IX, 493-497).
85 L. nr. 34/1901, 8. gr., 2. mgr.
86 14. gr., 6. mgr.
87 L. nr. 36/1950, 13. og 19. gr.
88 L. nr. 38/1978.
89 Lovs. III, 393n.
29