Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1992, Page 128
Sigurður Pálsson
— Þróunin er „híerarkísk”. Eitt stig fylgir öðru í ákveðinni röð frá
einföldum formgerðum til flóknari formgerða.
— Þróunin er óbreytanleg, þannig að síðara stig byggir ætíð á því fyrra.
Einstaklingurinn hleypur aldrei yfir stig.
— Þróunin er algild (universal). Samskonar þróun á sér stað hvarvetna,
óháð menningu. Aðstæður geta hraðað henni eða hamlað en ekki
breytt.
Kohlberg
Áður hefur þess verið getið að áhugi Fowlers á þroskaferli trúarinnar hafí
vaknað við störf hans í Interpreter's House. Annar áhrifamikill hvati að
rannsóknum hans var kynni hans af kenningum Lawrence Kohlbergs um
siðgæðisþroska.12
Heimspekileg viðhorf Kohlbergs til siðgæðis og siðgæðisvitundar manna
hafa verið nefnd algildishyggja sem rekja má til Sókratesar og síðar Kants.
Út frá því er gengið, að aðeins sé til ein dygð, „réttlæti“, og að réttlætis-
vitund búi með öllum mönnum án tillits til menningar eða þjóðfélagsgerðar.
Hvað varðar þroskasálfræðileg viðhorf, aðhyllist Kohlberg þroska-
kenningu Piagets. Kenning Kohlbergs felur í sér að siðgæðisvitund manna
þroskist samkvæmt ákveðnu ferli óháð menningu. Til að greina þetta ferli
hefur Kohlberg kosið að rannsaka einkum með hverjum hætti einstaklingar
á ólíkum aldri og með breytilega félagslega mótun færa rök fyrir siðferði-
legum viðhorfum sínum og breytni. Röksemdimar eða hugsanaferlið
flokkar hann síðan í þrjá meginflokka og hvem þeirra í tvo undirflokka og
leiðir þannig í ljós aðgreind skeið eða þrep í þroskaferli siðferðilegrar
hugsunar. Þannig sýnir hann fram á hvemig formgerðir siðgæðishugsunar
breytast með afgerandi hætti frá einu þroskaskeiði til annars. Aldur
einstaklinga á tilteknu þroskaskeiði er breytilegur og ráða umhverfisáhrif
mestu um hvenær tilteknum þroska er náð og hvort siðgæðishugsun, eins og
henni er lýst á efstu stigum, nær að þroskast. Sjálft þroskaferlið er ætíð hið
sama hjá öllum, þannig að þrepin em gengin hvert af öðm og ætíð í sömu
röð. Það er hins vegar breytilegt og ýmsu háð hversu langt verður komist á
þroskaleið.
Þar sem það skiptir nokkm máli til skilnings á kenningum Fowlers er rétt
að geta þess að eitt af því sem Kohlberg telur nauðsynlega forsendu (en þó
ekki nægjanlega) fyrir siðgæðishugsun á ákveðnu stigi er hæfileiki til að
setja sig í spor annarra, þ.e. samskiptaskilningur einstaklingsins. Robert
Selman13 hefur sett fram kenningu um hvemig þessi samskiptaskilningur
12 Um kenningar L.C. Kohlbergs vísast til ritgerðar dr. Sigrúnar Aðalbjamardóttur:
Kenning Kohlbergs um siðgæðisþroska, í afmælisriti dr. Brodda Jóhannessonar,
Gefið og þegið, Iðunn, Reykjavík 1987. Einnig má benda á Moral Development, A
Guide to Piaget and Kohlberg eftir Ronald Duska og Mariellen Whelan; Gill and
Macmillan 1977. Þar er athyglisverður kafli um siðgæðisþroska og kristna trú.
13 Robert L. Selman: The Developmental Conceptions of Interpersonal Relations;
publication of the Harvard-Judge Baker Social Reasoning Project, December 1974,
126