Jón á Bægisá - 01.12.2010, Page 6
Ritstjórar hafa orðið
sér fyrir hendur að þýða þennan nítjándu aldar texta með nokkuð fornum
hætti, svolítið í stíl höfundarins, ef svo má segja. Það er líka skemmtilegt
að fá hann inn með Lúther þar sem þeir mynda að einhverju leyti andstæða
póla í viðhorfum stnum til þýðinga.
Enn einn jöfurinn á blöðum Jóns d Bœgisá í þessu hefti er einn fræg-
asti málfræðingur spænskrar tungu frá tímum landvinninga þeirra í „nýja
heiminum“ eins og hann var kallaður. Það er Antonio de Nebrija sem rit-
aði málfræði kastilískrar tungu og hér fáum við að lesa inngang hans að
verkinu þar sem fram kemur hvernig hann þýðir í raun og veru málfræði
fornaldar og sníður að kastilísku og öfugt. Þýðandinn er Anna Sigríður
Sigurðardóttir.
Síðasta þýdda greinin er nýrri af nálinni, frá síðustu öld, en hún er eftir
frönsku fræðimennina Jean-Paul Vinay og Jean Darbelnet sem kunnastir
eru fyrir samanburðarstílfræði sína, stylistique comparée, og gefið hefur
okkurmörggagnleg og vel hugsuð hugtök um mismunandi gerðir þýðinga.
Aslaug Anna Þorvaldsdóttir þýddi grein þeirra félaga.
Tvær frumsamdar greinar prýða Jón d Bœgisá að þessu sinni. Magnús
Fjalldal ber saman íslenskar þýðingar á frægasta kvæði breska skáldsins
Thomasar Grays; þýðendurnir eru Einar Benediktsson og Páll Bjarnason.
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir ritar síðan grein um þýðingar Þórodds
Guðmundssonar á mörgum kunnustu kvæðum breska skáldsins Williams
Blakes. Eins og ljóð Grays teljast kvæði Blakes til lykilverka bresks kveð-
skapar og er mjög forvitnilegt að skoða hvernig tekist hefur til við þýðingar
á þessum merku kvæðum.
Sigurður A. Magnússon birtir hér þýðingar sínar á átta ljóðum frá
Suður-Afríku frá því fyrir lausn Nelsons Mandelas.
Einn ritstjóra skrifar síðan litla grein í minningu eins merkasta þýð-
ingafræðings síðustu aldar, Hans J. Vermeers.
Þannig kemur Jón d Bagisd til lesenda að þessu sinni og vonum við
ritstjórar að þýðendur og aðrir áhugamenn um þýðingar finni hér eitthvað
við sitt hæfi.
4
á .JBœy/isá - Tímarit um þýðingar nr. 14 / 2010