Jón á Bægisá - 01.12.2010, Side 38

Jón á Bægisá - 01.12.2010, Side 38
Antonio de Nebrija -Anna Sigriíur Sigurðardóttir ig upphafsmenn margs annars, þar á meðal þess að skera jafnhliða steina, að byggja turna, bræða málma, að blása gler, að sigla eftir stjörnunum, að vinna skærrauðan lit úr blómum eða blóði purpuraskeljar og fundu upp valslöngvuna sem Juan de Mena eignaði ranglega Majorkabúum. Þannig geta gyðingar hafa fengið ritmálið frá Fönikíumönnum sem sökum nábýlis1 deildu skilgreiningum og hugtökum. Eða frá Egyptum eftir að Jakob og syn- ir hans eignuðust afkomendur í Egyptalandi vegna þeirrar miklu hungurs- neyðar sem við lesum um í bókinni um tilurð himins og jarðar.2 Það finnst mér líklegra sökum þess er Grikkinn Heródótos, faðir sagnfræðinnar, og Iatínumaðurinn Pomponíus Mela rita um: Egyptarnir lesa afturábak3 eins og við sjáum í dag að Gyðingarnir gera. Ef satt er það sem skrifa Epígenes, Krítódemos og Berosos, þá eiga bókstafirnir uppruna sinn í Babýlóníu, og ef tillit er tekið til þess tíma er þeir rituðu gæti Abraham hafa komið með ritmálið þegar hann var sendur af guði frá landi Kaldeumanna, sem í raun eru Babýlóníumenn, til Kanaanslands. Eða síðar þegar Jakob sneri aftur til Mesópótamíu og vann fyrir tengdaföður sinn, Laban. Þó svo að mikil óvissa ríki um uppruna ritmálsins eru allir höfundarnir sammála um að Kadmos, sonur Agenors, hafi komið með það frá Fönikíu til Grikklands þegar hann var neyddur af föður sínum til að leita Evrópu systur sinnar sem Júpíter hafði rænt og komið til Böótíu þar sem hann byggði borgina Þebu. Nú ríkir enginn vafi um að frá Grikklandi til ltalíu færði ritmálið Níkóstrata sem á latínu er nefnd Carmenta, sú er fylgdi syni sínum Evandrosi í sjálfviljuga út- legð frá Arkadíu og til þess staðar sem Róm stendur nú á og byggði þar borg á Palatínusarhæð, þar sem síðar reis höll konunga og rómverskra keisara. Margir gætu verið í vafa um það hver kom fyrstur með ritmálið til okkar á Spáni eða hvaðan menn þjóðar okkar gætu hafa fengið það. Þrátt fyrir að það sé mjög nærri sannleikanum að Þeba gæti hafa komið með það frá Bakkosi, syni Júpíters og Semölu, dóttur Kadmosar, þegar hann kom til Spánar nær tvöhundruð árum fyrir Trójustríðið þar sem hann missti vin sinn og félaga, Lisías sem Lisitanía, síðar Lúsitanía, var nefnd eftir, það er allt það svæði er liggur á milli Duero og Guadiana, og byggði borgina Ne- brissa4 sem öðru nafni nefnist Veneria, staðsett samkvæmt Plíníusi í þriðju bók La Natural Historia,5 á milli ármynna og láglendis Guadalquivir. Og hann nefndi Nebrissa eftir nebrides sem var hamur af dádýrshindum er 1 Hér notar hann tvö orð sem bæði þýða í rauninni „nágrenni" þannig að ég nota það ein- ungis einu sinni. 2 Hann er hér að vísa í Biblíuna. 3 Hér á hann við að þeir byrja aftast á bókinni og lesa frá hægri til vinstri. 4 Sem í dag nefnist Lebrija. 5 Ég tel að hérna eigi hann við „Sögu Spánar" því ég finn ekkert nánar um þessa sögu nema það að hún virðist íjalla um Spán sjálfan. 36 á jSf/y/oá — Tímarit um týðingar nr. 14 / 2010
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.