Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Blaðsíða 77
M i s t e r Ta y l o r
TMM 2014 · 1 77
Augusto Monterroso (1921–2003) var frá Guatemala en skrifaði flest verk sín í
Mexíkó. Þar settist hann að eftir að hann var gerður útlægur í tvígang frá heima-
landi sínu. Monterroso skrifaði einkum smásögur og alls kyns stutta, óhefðbundna
texta. Fyrsta bók hans kom út árið 1959 og bar hinn háðska titil Obras completas (y
otros cuentos) eða Heildarsafn (og aðrar sögur). Í þessu riti eru smásögur og stuttir
textar sem nú á dögum gætu kallast örsögur, en Monterroso var einn helsti frum-
kvöðull þess í Rómönsku Ameríku að taka stutta prósatexta alvarlega sem listform.
Eitt þekktasta verk hans er La oveja negra y demás fábulas frá 1969 – Svarti sauður-
inn og aðrar fabúlur (Bjartur, 2012); þar leitar hann í smiðju liðinna tíma og endur-
vekur fabúlu-formið með nýstárlegum hætti. Meðal annarra verka hans má nefna
Movimiento perpetuo, 1972 (Eilíf hreyfing), skáldsöguna brotakenndu Lo demás es
silencio (La vida y la obra de Eduardo Torres, 1978 (Þar sem þögnin ein er eftir (Líf
og verk Eduardos Torres)), ritgerðasafnið La palabra mágica, 1984, (Töfraorðið), La
letra e (Fragmento de un diario), 1987 (Bókstafurinn e (Dagbókarbrot)) og La vaca,
1998 (Kýrin), safn ritgerða og smásagna.
Monterroso hefur unnið til fjölda verðlauna, m.a. Áquila Azteca (1988), Juan Rulfo
(1996), Þjóðarbókmenntaverðlaun Guatemala sem eru kennd við Miguel Ángel
Asturias (1997) og Príncipe de Asturias-verðlaunin (2001).
Sagan „Mister Taylor“ hefur birst í safnritum á mörgum tungumálum og er upp-
hafssaga fyrstu bókar hans. Söguna skrifaði hann snemma á sjötta áratugnum þegar
hann bjó í Bólivíu; þá sótti á hann heimsvaldastefna Bandaríkjanna og The united
Fruit Company, en á þessum árum hafði Jacobo Árbenz, kjörnum forseta Guatemala,
verið steypt af stóli. Eins og flest skrif Monterrosos er sagan hlaðin húmor og háði.
– Þýð.