Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Blaðsíða 69
Á s a- Þ ó r o g f ö r i n t i l H o l l y w o o d
TMM 2014 · 1 69
Tilvísanir
1 The Avengers 2012. Handritshöfundur Joss Whedon.
2 Þessi tímabilaskipting er ekki mín, heldur er hún almennt samþykkt ofskynjun í heimi mynda-
sagna. Sem dæmi um áhugaverðar heimildir um ofurhetjur og myndasögur má nefna Richard
Reynolds, Superheroes: A Modern Mythology, university of Mississippi, Jackson 1992 og Geoff
Klock, How to Read Superhero Comics and Why, New York og London, Continuum 2002.
3 Þetta með höfunda og myndasögur er f lókið mál. Lengi vel var hefð fyrir því að kenna Thor
(og fleiri silfuraldarhetjur) bara við Stan Lee, sem var hugmyndasmiður og söguhöfundur, en
seinna var þáttur teiknarans Jack Kirby metinn að verðleikum og nú er hann iðulega nefndur
sem meðhöfundur. Samkvæmt Wikipediu hefur þriðji höfundurinn bæst við Thor, Larry Lie-
ber, sá sem skrifaði handritin að fyrstu sögunum. http://en.wikipedia.org/wiki/Thor_%28Mar-
vel_Comics%29, síðast skoðað 02.02.14.
4 Segja má að þessi kynusli sé í fullkomnu samræmi við persónu Loka í norrænum goðsögum, en
hann fer einmitt frjálslega með eigið kyn, eins og til dæmis þegar hann bregður sér í líki hryssu,
táldregur fola nokkurn og eignast með honum áttfætt folald, sem seinna verður Sleipnir,
uppáhaldsútreiðahross Óðins. Á hinn bóginn má líka sjá þarna ummerki þess að bandarískt
samfélag sjöunda áratugarins er mun karlrembulegra en norræn fornöld; hinum amerísku höf-
undum hefur einfaldlega þótt sjálfgefið að sonur væri nefndur eftir föður sínum.
5 Þess má geta að í Thor: The Dark World (2013) er að finna eina alfegurstu kynusla senu sem
ég hef lengi séð í hasarmyndum. Thor syrgir móður sína og í örstuttri senu sést hann standa
brjóstaber við vatnsskál, dapurt andlitið er í mjúkum fókus og örlítið er hægt á myndatökunni
þar sem hann baðar sig upp úr köldu vatni.
6 Af öðrum myndasögumyndum má nefna Ghost World (2001), American Splendor (2003),
Hellboy (2004 og 2008), History of Violence (2005), Sin City (2005), Kick Ass (2010) og 2 Guns
(2013).
7 Mig langar að þakka Þórhalli Björgvinssyni í Nexus fyrir að gefa mér skyndikúrs í Thor-
myndasögum og benda mér meðal annars á bækur Simonsons.
8 Það þarf svosem ekki Thor né Bandaríkin til. Þegar ég kenndi yfirlitsnámskeið um íslenskar
bókmenntir og menningu í HÍ árin 1996–2002 reiddust nemendur (allra þjóða kvikindi) mér
iðulega þegar ég benti á að ég liti á Íslendingasögurnar sem skáldskap. Þau sem á annað borð
höfðu einhverja hugmynd um tilvist Íslendingasagna, það er.
9 Ég fór með frænku minni, 85 ára gamalli, á Thor: The Dark World, en hún er mikil bókmennta-
manneskja og hefur mikinn áhuga á fornbókmenntum. Hún skemmti sér konunglega og var
sérstaklega ánægð með hvað öll hönnun og sjálft sjónarspilið var glæsilegt.
10 Þessi grein er að hluta til innblásin af námskeiðinu Menningartengd ferðaþjónusta sem kennt
var í Háskóla Íslands haustið 2013. Ég vil þakka þeim Katrínu Önnu Lund og Guðbrandi
Benediktssyni fyrir að sjá mér fyrir ákaflega hugvekjandi lesefni.
11 Helgi Þorláksson, „Sagnfræðin í heimi menningararfs og minninga“ í Þriðja íslenska söguþing-
ið 18.–21. maí 2006, ráðstefnurit, ritstj. Benedikt Eyþórsson og Hrafnkell Lárusson, Reykjavík,
Sagnfræðingafélag Íslands 2007.
12 McKercher, Bob og Hilary du Cros. 2002. Cultural Tourism: The Partnership Between Tourism
and Cultural Heritage Management, London og New York, The Haworth Hospitality Press
2002, bls. 46.
13 Sama, bls. 109.
14 Sem dæmi um að ekki gengur allt upp í Snorra-Eddu eru heimarnir níu, sem nefndir eru í
Völuspá og mikið er vísað til í báðum Thor-myndunum. Það er þó með öllu ómögulegt að
telja til níu heima í norrænni goðatrú, þeir eru í mesta lagi átta: Ásgarður, Vanaheimur, Mið-
garður, Múspellsheimur, Svartálfaheimur og Niflheimur, við þetta má mögulega bæta heimi
dverganna, Niðavöllum og heimi álfa. Eina leiðin til að ná þessu upp í níu er að telja Gimli með
og það er hæpið, þarsem hann verður ekki til fyrr en eftir að hinir hafa fallið.
15 Sjá um þjóðsögur, sagnamennsku og endursagnir: Marina Warner, From the Beast to the
Blonde: On Fairy Tales and their Tellers, London, Wintage 1995.
16 Sjá t.d. Marina Warner, From the Beast to the Blonde: On Fairy Tales and their Tellers, London,