Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Blaðsíða 40

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Blaðsíða 40
E r l a Þ ó r d í s J ó n s d ó t t i r 40 TMM 2014 · 1 – Torfadalur. Aldrei hef ég séð svo lítinn bæ og svo pínulítið tún, en er nógu kurteis til að þegja um það. Þegar ég hef svalað þorsta mínum og hvílst stundarkorn ætla ég að kveðja og halda áfram för minni, því karlinn tafði mig svo með því að pína mig til að ganga alla þessa leið. En konan biður mig að vera ögn lengur og opnar bauk með smákökum. – Ég fæ svo sjaldan gesti og aldrei blöð eða póst, æ, vertu svo góður að segja mér tíðindi, af sjálfum þér og fólkinu þínu og … er eitthvað títt í sveitinni, í landinu? Fyrst segi ég henni af viðskiptum mínum við karlinn ljóta, svo um drukknun föður míns formannsins og glefsur sem ég mundi úr blöðum og slúðri og þvaðri, það stóð út úr mér buna af fréttum, því konan var svo glöð að sjá mig og fá eitthvað að heyra. – Þú verður einhverntíma seigur, drengur minn, sagði hún, og tók svona vel undir allt sem ég sagði, plataði mig með gæðum sínum og hrósi til að útbulla mig út í móa. En þá mundi ég eftir karlinum sem skakklappaðist á eftir mér og hótaði hefndum. – Æ, karlinn gæti komið, ég er hálfsmeykur við hann eftir að ég hrekkti hann svona, segi ég. – Nah, hann … flakkarar eiga ekkert erindi á þetta bláfátæka heimili, sagði hún, döpur og þegar hún sér hvað ég verð glaður við þetta bætir hún við: – Ég rek hann þá burt eins og rakka. Hún grípur ljáinn sem hún hafði lagt frá sér og sveiflar … Ég hlæ, og geng til Rauðs, vippa mér á bak og kveð hana með því að vinka og ríð hratt burt. Ríð ég nú á skokki um stund, þykist mikill riddari upp með mér af því hvað konan tók öllu af mikilli áfergju sem ég sagði, eins og ég væri bráðskemmtilegur og fróður, þótt ég bara bullaði það sem ég hafði heyrt og allir voru að tala um. Loks kem ég að reisulegum bæ, sem ég veit að hlýtur að vera Kirkjuvogur. Er þar allt með einstökum myndarbrag og vex aðdáun mín því nær sem dregur. Feginn er ég að eygja loks áfangastað. Nokkrir sandbakkar eru þarna við götuna. Þegar ég reið fyrir ysta bakk- ann hleypur förumaðurinn skyndilega í veg fyrir mig og reynir að stöðva mig. Það tekst ekki, en hann fælir Rauð sem hrekkur út undan sér svo að ég er næstum fallinn af baki, hangi á hliðinni. Rauður tekur undir sig stökk og karlinn sendir flaum af ókvæðisorðum á eftir mér, helvítið. Ég ríð inn langa tröð sem liggur heim að bænum. Í staðinn fyrir hlið var lagður staur fyrir tröðina. Svo mikil ferð er á Rauð eftir árás flakkarans að hann setur í makkann undir staurinn svo hann féll, og stökk hiklaust með mig heim í hlað. Húsfreyja heyrði mig koma og stendur í bæjardyrum brosandi, tekur mér fagnandi. Ég flengist af baki og heilsa með handabandi. Bóndi hennar er í róðri svo að frúin tekur við svipunni, og segist mundi sjá til þess að verð hennar verði lagt á reikning smiðsins heima í Vogum í vissri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.