Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Blaðsíða 103
TMM 2014 · 1 103
Ágúst Borgþór
Þvottadagar
Þvottavélin var full af skyrtum og blússum í bland við nærboli. Óskar
hengdi skyrturnar og blússurnar upp á herðatré sem héngu í röð á einni
þvottasnúrunni. Þá rifjaðist upp fyrir honum að Sigrún vildi frekar að
þessar flíkur væru festar upp með þvottaklemmum á snúrurnar eftir að
vandlega hefði verið slétt úr þeim. Hún sagði að fötin yrðu krumpaðri á
herðatrjánum og þá þyrfti að strauja meira. Hann hafði þá spurt til hvers
herðatrén væru þarna eiginlega og hún svarað að þau væru fyrir jakkapeysur.
En það voru engar jakkapeysur í vélinni núna. Þetta var vitleysa í henni,
skyrturnar hans urðu ekkert krumpaðri af því að hanga á herðatré og hann
ákvað að hunsa tilmælin. Sú var tíðin að hún þurfti að kenna honum öll
húsverk en nú orðið virtist hún bara finna að til að þjóna eigin sérvisku. Til
dæmis þegar hann ryksugaði, þá fann hún alltaf að því ef hann gekk ekki
undireins frá ryksugunni inn í ræstikompu. En þegar hún ryksugaði – og
hann viðurkenndi að það var miklu oftar – stóð ryksugan úti á miðju gólfi
klukkutímum og jafnvel dögum saman. Ef hann hafði orð á því sagðist
hún eiga eitthvað eftir, að ryksuga bak við stofusófann, stofuskápinn eða
ísskápinn – eitthvað svona verulega faglegt sem honum datt aldrei í hug að
gera.
Þegar þau byrjuðu saman fyrir aldarfjórðungi bjó hann í íbúð sem var
troðfull af tómum bjórdósum og sígarettustubbum. En síðan var mikið vatn
runnið til sjávar og það var eins og hún gæti ekki sætt sig við að hann var
fullfær um húsverkin án leiðsagnar, eins og hún væri að streitast við að halda
í einhver yfirráð. Hann gældi stundum við tilhugsunina um að búa einn,
hengja bara sjálfur upp sinn eigin þvott á þann hátt sem hann vildi, hafa
ryksuguna aldrei inni í skáp. En auðvitað myndi hann aldrei gera alvöru
úr því að fara frá henni. Það var óhugsandi, ekki út af börnunum, þau voru
orðin stór, heldur út af öllum öðrum. Hvernig ættu þau að útskýra það fyrir
fólki sem taldi hjónaband þeirra fullkomið (sem það kannski var, enginn hélt
því fram að fullkomið hjónaband væri endilega skemmtilegt)? Hvernig ættu
þau að afbera allt umtalið? Og ef hann byggi einn myndi íbúðin hans líklega
fyllast aftur af tómum bjórdósum því enginn væri til að fylgjast með því hvað
hann drykki mikið og hugsa sitt. Öllum heiminum er sama um hvað karl-
maður sem býr einn í leiguíbúð drekkur marga bjóra innan veggja heimilis