Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Side 6

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Side 6
Þ o r va l d u r G y l fa s o n 6 TMM 2014 · 4 fullnuma í þeirri námsgrein sem heillar mig mest í Skóla lífsins og fjallar um mannlega náttúru, en á Alþingi sá ég ýmsar kraftbirtingarmyndir hennar sem ég hafði ekki séð áður, eða að minnsta kosti ekki fengið að athuga við jafngóðar aðstæður. Þorvaldur: Hvernig tóku gömlu flokkarnir nýjum þingflokki glænýs stjórnmálaafls, Borgarahreyfingarinnar? – þingflokki, sem var afsprengi hrunsins og eingöngu skipaður fólki, sem hafði ekki áður setið á þingi. Þráinn: Skrifstofa Alþingis sá um skyndinámskeið fyrir alla nýgræðinga á þingi. Stjórnarmyndunarviðræður fóru fram án þess að Samfylking eða Vg létu í ljósi áhuga á samvinnu við Borgarahreyfinguna sem bendir til þess að í byrjun hafi vinstristjórnin ofmetið styrk sinn og samstöðu þessa tæpa meiri­ hluta. Eðli málsins samkvæmt tilheyrði Borgarahreyfingin því stjórnarand­ stöðu og ég varð ekki var við nein sérstök fagnaðarlæti frá gömlu flokkunum yfir því að nýrri hreyfingu hefði tekist að ná fjórum þingsætum sem annars hefðu lent hjá þeim. Þorvaldur: Er það rétt, að þingmenn hafi sætt einelti á Alþingi? Ég spyr vegna þess, að fjölmiðlar hafa fjallað um meint einelti á Alþingi eftir hrun. Slíkt getur varla farið fram hjá mönnum á svo fámennum vinnustað. Stjórnvöld hafa markað þá stefnu, að starfsmanni, sem verður var við einelti á vinnustað, ber að segja yfirmönnum frá því. Yfirmenn, sem láta undir höfuð leggjast að bregðast við upplýsingum um einelti á vinnustað, geta þurft að sæta viðurlögum samkvæmt sömu reglugerð. Þráinn: Frá æskuárum hef ég talsverða reynslu af einelti og ekkert sem ég sá eða heyrði á þinginu minnti mig á þá reynslu. Þótt pent fólk og kurteist vilji kannski líta framhjá því verður ekki hjá því komist að Alþingi sé vettvangur skoðanaágreinings, hagsmunaárekstra og átaka. Þingsköp og almennar kurteisisreglur stuðla að því að þessi óumflýjanlegu átök geri farið friðsam­ lega fram og jafnvel kurteislega, þótt stundum kunni að vera grunnt á því góða. Ég veit ekki hvað gerðist bak við luktar dyr í öðrum þingflokkum en þeim sem ég tilheyrði, fyrst Borgarahreyfingu og svo Vg, og þar varð ég aldrei var við neitt sem minnti mig á einelti. Á sama hátt fannst mér að fólk gæti ráðið því sjálft með viðmóti sínu og framkomu hvernig aðrir hegðuðu sér gagnvart þeim. Sumir ávinna sér virðingu með framkomu sinni. Aðrir ekki. Þorvaldur: Ég hef tekið eftir því í fréttum, að þingmenn eru sendir heim, ef buxurnar þeirra eru ekki í réttum lit, en þeir mega kvarta átölulaust undan „útaustri ríkisfés“ úr ræðustól þingsins. Mætti þingmaður til dæmis ganga um sali Alþingis með húðflúr á áberandi stað? Mætti standa „Íslandi allt!!!“ yfir þvert ennið á honum? Mætti vera stafsetningarvilla í húðflúrinu? Þráinn: Það eru skiptar skoðanir um þessar undarlegu reglur um klæðaburð og talsmáta karlmanna sem gilda á þinginu. Mér finnst að hver og einn eigi að ráða því hvernig hann eða hún klæðir sig og tjáir. Þorvaldur: Er það rétt, að stundum hafi heyrzt grátur og gnístran tanna á þingflokksfundum? Og hvað geturðu sagt mér um þingmennina tvo, sem
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.