Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Page 7

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Page 7
Tv ö fa l t l í f TMM 2014 · 4 7 gengu glaðir og reifir inn um dyr fundarherbergis í þinghúsinu og komu út um klukkustundu síðar eins og barðir hundar? – það var sjónarvottur úr hópi þingmanna, sem lýsti þessu fyrir mér. Hvað getur hafa gerzt á bak við þessar luktu dyr? Var þér einhvern tímann boðið til slíks fundar? Þráinn: Nei, ég man ekki til þess að neitt sérlega krassandi hafi gerst á þingflokksfundum sem ég sat. Á þingflokksfundum Borgarahreyfingarinnar þann tíma sem hún lifði ræddum við saman – að mér fannst – hreinskilnis­ lega og tæpitungulaust. Eftir að Borgarahreyfingin sundraðist og mér hafði skolað inn til Vg tók það mig soldinn tíma að átta mig á að umræða á þing­ flokksfundum fór ekki fram á jafnréttisgrundvelli heldur höfðu skoðanir manna vægi sem fór eftir goggunarröð í flokknum, flokksaldri og flokksvigt og vitanlega því hvort viðkomandi var ráðherra eða fótgönguliði. Þetta held ég að sé einkenni á öllum gömlu flokkunum sem eru að hluta til skipulagðir vinnustaðir fólks sem hugsar sér að gera pólitík að ævistarfi og vinna sig upp metorðastiga í sínum flokki. Búsáhaldabyltingin Þorvaldur: Hörður Torfason söngvaskáld sagði mér merkilega sögu. Hann stjórnaði friðsælum útifundum á Austurvelli búsáhaldabyltingarveturinn 2008–2009 eins og alþjóð veit og var einn daginn kvaddur á fund í Alþingi, þar sem forseti þingsins og skrifstofustjóri lýstu fyrir honum þungum áhyggjum af eggjum, sem hafði verið fleygt í þinghúsið, og öðru smátjóni. Hörður segist hafa sagt við þá, að tjónið á Alþingishúsinu vegna þessara funda væri óvera hjá þeim gríðarlega skaða, sem bankarnir með atbeina stjórnmálamanna hefðu valdið fólkinu í landinu. Fundurinn varð ekki lengri. Hörður hafði ekki gengið nema 50–100 metra út úr þinghúsinu, þegar hann fékk símhringingu frá Rannsóknarnefnd Alþingis og honum var tjáð, að hans væri ekki þörf síðar sama dag á fundi, sem nefndin hefði boðað hann á löngu fyrr. Var tímasetning upphringingarinnar tilviljun? Eða er þetta saga um „þræði valdsins“? – svo að ég vitni í heitið á bók Jóhanns Haukssonar, síðar blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar. Þráinn: Ég tek hvert orð trúanlegt sem Hörður Torfason segir og hef aldrei reynt hann að öðru en sannsögli. Um þetta tiltekna mál veit ég ekki neitt, en varðandi eggja­ eða grjótkast að Alþingishúsinu var það mér ráðgáta lengi vel hvers vegna löggan setti ævinlega upp varnarlínu svo nærri Alþingis hús inu að 7 ára barn hefði átt auðvelt með að grýta húsið. Ég er ekki herfræðingur né þaullesinn í þeim von Clausewitz og Sun Tzu en ég hefði talið hentugra að hafa varnarlínuna fjær húsinu og spara þannig umtalsverð eignaspjöll, auk þess að forða þingmönnum, prestum og biskupum og öðrum sem voru í beinni lífshættu við þingsetningu eins og dæmin sanna. Það er vissulega réttur fólks að mótmæla en að grýta þingmenn eða þinghúsið er ekki hluti af þeim réttindum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.