Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Page 13
Tv ö fa l t l í f
TMM 2014 · 4 13
ljósum logum meðan brennuvargarnir eru enn á svæðinu og reyna eftir
föngum að þvælast fyrir með því að skrúfa fyrir vatnið, skera á slöngurnar
eða meina björgunarliðinu aðgang að logandi húsinu.
Ég er ánægður með þá liðveislu sem ég veitti stjórn Jóhönnu og Steingríms
með stuðningi mínum þegar jafnvel ráðherrar innan ríkisstjórnarinnar
störfuðu gegn henni. Jafnframt finnst mér núna að ég hefði ekki átt að styðja
þessa stjórn út kjörtímabilið heldur leyfa henni að falla á þriðja ári kjör
tímabilsins þegar ljóst var orðið að hún starfaði mestan part sem óformleg
minnihlutastjórn og hafði enga burði til að koma stórum málum í höfn, svo
sem stjórnarskrármálinu og fiskveiðistjórnarmáli. Ég trúði gamalli möntru
um að það væri lífsspursmál upp á framtíðina að gera að vinstri stjórn gæti
setið heilt kjörtímabil. Úrslit síðustu kosninga sýndu fram á að sú trúarkenn
ing var röng og mikilvægara er að stjórnir sitji ekki lengur en þann tíma sem
þær geta komið málum í gegn um þingið.
Virðing Alþingis
Þorvaldur: Alþingi hefur aldrei notið jafnlítillar virðingar meðal þjóðar
innar og það hefur gert frá hruni, segja þau hjá Capacent. Hvernig skýrir þú
virðingarleysið? Er það fyllilega verðskuldað?
Þráinn: Sjálfsagt sýna svona kannanir að lýðræðið okkar er ekki í góðu
standi. Ef fólk ber ekki virðingu fyrir kjörnum fulltrúum þá getur það varla
heldur borið virðingu fyrir sjálfu sér sem kjósendum.
Það virðist hafa gleymst eða kannski fólk vilji sópa því undir teppið
að eðli málsins samkvæmt hljóta stjórnmál að vera átök. Þingmenn eru
skylmingaþrælar almennings. Það er hin sívílíseraða aðferð að kjörnir
fulltrúar vegast á með orðum á sérstökum þingum í stað þess að vopnaðir
flokkar fari um og útkljái deilur með eldi og sverði.
Hvort skylmingaþrælar voru sérstaklega virðingarverð stétt veit ég ekki,
en þeim var att út í bardaga upp á líf og dauða nauðugum viljugum. Kjörnir
fulltrúar, skylmingaþrælar nútímans, gefa sjálfir kost á sér til leiksins. Þeir
sækjast eftir að taka þátt í baráttunni og flestir þeirra eru kappsfullir vegna
þeirra sigurlauna sem henni fylgja.
Skylmingaþrælar nútímans eru sagðir berjast ekki til að skemmta almúg
anum með vígfimi sinni heldur eiga þeir að berjast fyrir ýmsum hlutum
sem hinir ýmsu stjórnmálaflokkar telja að séu forsendur betra þjóðfélags.
Þetta er mjög virðingarvert verkefni, en svo eru þess dæmi að vopnagnýrinn
afvegaleiði menn og þeir gleymi orsökum ófriðarins og fari að berjast um
herfang og fyrir eigin gloríu.
Það er óskaplega erfitt að ímynda sér að barátta fyrir hlutum eins og
að hækka skatta og auka ríkiseftirlit með skattsvikum geti vakið eða við
haldið miklum hugsjónaeldi meðal almennings. Það er líka vafamál hvort
það vekur mikla virðingu fyrir starfi stjórnmálamannsins að heyra menn