Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Síða 14

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Síða 14
Þ o r va l d u r G y l fa s o n 14 TMM 2014 · 4 flytja stóryrtar ræður um nauðsyn þess að grafa jarðgöng gegnum fjöllin umhverfis þorpið Neðrahundagerði. Og allrasíst vekur það virðingu fyrir starfi stjórnmálamanna að daginn út og inn leggja fréttamiðlar höfuðáherslu á þá staðreynd að á þessum vinnustað séu menn ósammála um alla skapaða hluti og vinni – ef það er þá vinna – við að þrasa um þá frá morgni til kvölds. Það vill gleymast að mjög stór hluti þeirra laga sem kemur frá Alþingi eru þrátt fyrir allt samþykkt ýmist í einu hljóði eða án mótatkvæða. Þorvaldur: Þá fyrst er nú kannski ástæða til að grípa um veskið sitt. Þráinn: Það er vissulega alveg rétt að almenningur á alltaf að vera var um sig. Það er hin hliðin á skoðanakönnunum um „traust“. Auðvitað á fólk aldrei að „treysta“ stjórnmálamönnum og allrasíst stjórnmálaflokkum heldur eiga störf þeirra að vera undir stöðugu eftirliti. Hin pólitíska umræða snýst ekki lengur um grundvallaratriði eins og mat handa öllum, jafnrétti fyrir lögum, menntun handa öllum; og réttur fátækra til að njóta læknisaðstoðar og lyfja hefur verið viðurkenndur – þótt ríkisstjórnarflokkarnir núna vilji hverfa aftur til fortíðar á því sviði eins og fleirum. Hin pólitíska umræða snýst mestan part um óendanlega röð af smá­ atriðum sem eru viðbætur, breytingar eða meintar lagfæringar á allri þeirri lagaflækju sem umlýkur nútímaþjóðfélag og enginn, segi og skrifa ENGINN hefur fullkomna yfirsýn yfir. Áhorfandi sem tekur sér sæti á þingpöllum í dag heyrir ekki innblásnar ræður um þau gildi sem skuli vera hornsteinar þjóðfélagsins heldur heyrir hann þras um „hjól atvinnulífsins“, „strandveiðiheimildir“, „skólabyggingu á Útnesi“, „nauðsyn þess að fækka svonefndum háskólum“ og alskonar hluti sem ekki eru beinlínis fallnir til að blása eldmóði í hvert einasta brjóst. Annars veit ég ekki um svona mælingar á tilfinningum fólks eða hug­ lægum atriðum, eins og þessar kannanir sem þú vísar til. Hvað er traust? Hvað er það nákvæmlega sem verið er að mæla? Hverju treystir fólk í sam­ bandi við RÚV sem þrátt fyrir mikla gagnrýni skorar yfirleitt hátt í slíkum mælingum? Ég held að fólk treysti því að fréttirnar byrji klukkan á slaginu sjö og að fastir liðir verði eins og venjulega. Ég held að fólk treysti löggunni til að koma tiltölulega fljótlega eftir að óskað hefur verið eftir hennar nær­ veru með því að hringja í 112. Hverju á maður að treysta í sambandi við þingið, nema því að þar heldur áfram hið eilífa þras um allt milli himins og jarðar meðan venjulegt fólk þarf að vinna til að hafa í sig og á með öðru en endalausum kjaftagangi. Ég á auðvitað við að „traust“ sem er fremur óljóst hugtak verður ekki vegið og metið nema sá sem spurður er um traust viti nákvæmlega um hvað verið sé að spyrja. Það sem mér finnst merkilegast við mælingar á virðingu þingsins er að almenningur virðist hafa ríka tilhneigingu til að afneita ábyrgð sinni á hinum kjörnu fulltrúum. Það vill gleymast að enginn situr á Alþingi án þess að hafa nokkur þúsund atkvæði á bakvið sig. Það vill gleymast að um Alþingi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.