Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Side 25

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Side 25
Tv ö fa l t l í f TMM 2014 · 4 25 komu útvarps og sjónvarps er að mestu leyti ímyndun. Jafnvel þótt formenn allra stjórnmálaflokka séu fyrir atbeina ljósvakamiðla kjaftandi heima í hverri stofu eða eldhúsi oft í viku er sú nánd ekki raunveruleg nema að litlu leyti. Smátt og smátt áttar maður sig kannski á því að einhver svitnar jafnan á efri vörinni þegar hann er að ljúga og annar fer að veifa höndunum eins og japanskur bardagalistamaður þegar honum finnst að sér vegið. Þótt ljós­ kastarar sjónvarpsins lýsi upp andlit stjórnmálamanna afhjúpa þau ekki það sem býr í hugarfylgsnum þeirra nema að mjög litlu leyti. Rómverjar sögðu „nimia familiaritas parit contemptum“ sem þýðir eitt­ hvað á þá leið að náin kynni dragi úr virðingu – „familiarity breeds con­ tempt“ – og þessi sífellda nærvera í fjölmiðlum gerir það að verkum að stjórn mála menn fara að þreyta almenning fyrr en áður, þeir endast ekki eins vel og þegar þeir skutu bara upp kollinum á stórhátíðum og töluðu mest með því að þylja utanbókar upp úr ljóðum þjóðskáldanna. Þetta hefur bæði kosti og galla, til dæmis verður það ákveðinn léttir í framtíðinni ef sá siður að hanga á forsetaembættinu eins og hundur á roði í mörg kjörtímabil leggst af. Þeir þingmenn sem ég starfaði með í fjögur ár voru að mörgu leyti ágætis þverskurður af þjóðinni sem okkur kaus. Í einhverju málþófinu gerði ég mér það til gamans að fara yfir þingmannalistann og tók þá sjálfan mig út fyrir sviga og svo merkti ég við þá þingmenn sem ég taldi að vegna gáfna, mannkosta og forystuhæfileika væri verulegur akkur í fyrir þjóðina að hafa í vinnu fyrir sig. Mín niðurstaða var sú að slíkir þingmenn væru 17 talsins á því kjörtímabili sem ég gegndi þingmennsku. Ég hvorki taldi né tel sjálfan mig í þeim hópi. Sumir þessara 17 voru í ríkisstjórn auk þess að gegna þing­ mennsku. Og ef það er eitthvað hægt að álykta út frá þessari kröfuhörku minni í garð starfsmanna þjóðarinnar þá er kannski fyrst og fremst þegar kemur að umræðunni um að fækka þingmönnum að spurningar vakna um hversu margir nýtilegir starfsmenn yrðu á þingi ef þingmönnum væri fækkað um helming? Ef það er töggur í 17 af 62 (tel sjálfan mig ekki með) þá eru það um 27% af þeim sem kosnir eru. Ef fækkað væri í 32 væru um það bil helmingi færri eftir, eða bara 8 eða 9 manns til að vinna verkin. Nema vitanlega hægt væri að slá tvær flugur í einu höggi: Að fækka þingmönnum um helming og finna leið til að þjóðin kysi sér helmingi betri þingmenn í stað þeirrar meðalmennsku sem nú tíðkast. Þorvaldur: Einmitt það var mín hugsun, þegar ég lagði til fækkun alþingismanna í stjórnlagaráði, en tillagan náði ekki fram að ganga. Allir stjórnlagaráðsfulltrúarnir 25 unnu verk sín vel, enginn þeirra lá á liði sínu. Ég spurði í einni ræðunni minni þar: Haldið þið, að okkur sæktust verkin betur, ef við værum 63 en ekki 25? Þráinn: Ég held reyndar að það þurfi hvorki afburðagreind né mikla snilli til að geta orðið mjög dugandi stjórnmálamaður, síður en svo. Ef ég hugsa þetta út frá hagsmunum heildarinnar er vitanlega best að þingmenn séu góðar manneskjur, stálheiðarlegir, vinnusamir og næmir á flæði og
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.