Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Qupperneq 47

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Qupperneq 47
G ö n g u f e r ð i r í h e i m a b y g g ð TMM 2014 · 4 47 08.11.13 Dökkur skýjabakki hékk á suðvesturhimni þegar ég gekk suður Jörfaveginn. Loftið var kalt en að öðru leyti var dagurinn mildur og þögull. Nóvember­ litir, gulbrún sina í móanum, tjörnin föl og málmkenndur blær á vatninu, frosið að hluta til. Fjöllin voru hvít með dimmgráu klettamynstri, Esjan blágrá. Hinum megin við Norðurnesveg gekk kona í svartri dúnúlpu. Við enda tjarnarinnar mætti ég hjónum, hann í appelsínugulri úlpu og hún í dökkri, bæði með hetturnar dregnar yfir höfuðið. Ég sá ekki að ég kannaðist við þau fyrr en ég mætti þeim og bauð góðan daginn. „Blessuð,“ sagði hann, hún bauð góðan daginn á móti. Göngustígurinn var frosinn, allt um kring beið jörðin tilbúin eftir að hvít ábreiða kæmi svífandi af himnum ofan. Við endann á götunni minni tók ég í fyrsta skipti eftir því hvað blái liturinn á húsinu út við sjóinn nýtur sín sér­ staklega vel í þessari nóvemberbirtu. Hinum megin götunnar var blár bíll í næstum því sama lit, númerslaus. Þegar ég kom gangandi í hlaðið heima sá ég tvö barnsandlit í glugga á efri hæð. Ég veifaði. 23.1.14. Gekk út Jörfaveginn eins og venjulega. Sólin var komin niður fyrir efstu hluta ljósastauranna en þó var ekki sólsetur í birtunni. Í móanum glampaði á einstök strá, lýsandi rákir á brúngulri sinu í skugga í bakgrunninum. Þegar ég beygði til austurs út Norðurnesveginn losnaði ég við sólina úr augunum og allt í kring öðluðust móarnir lit og dýpt. Esjan var hvít niður í rætur og böðuð sólskini. Sólargeislarnir drógu fram hamrana í Bláfjöllunum og lýstu upp Búrfellið og Lönguhlíðina. Himinninn fyrir ofan var heiður, ljósblár, hvítleitur, en út við sjóndeildarhring voru skýjabakkar og mistur. Ég horfði út yfir móana til austurs, kom auga á dumbrautt farartæki eða tól sem ég kunni ekki skil á. Dráttarvél eða heyvinnuvél. Liturinn minnti mig á sveitahús á Norður­Ítalíu í kringum Feneyjar, þessi sérstaki ryðrauði, dumbrauði, brúnrauði litur, djúpur og hlýr, umkringdur gulri sinu eins og gulum kornökrum. Dagurinn birtist fyrirvaralaust: þetta var þá ljómandi dagur. Ég hélt áfram mína leið, bílhljóð og flugvélarhljóð runnu saman í eitt. Í suðri birtust geysistórir tankar álversins í Straumsvík, röndóttir, baðaðir mistri. Útsýnið suður á bóginn var eins og landslag á ítölsku málverki þar sem hver hæðin á fætur annarri hverfur í mistur. Forljótt, risavaxið álverið reis upp úr rómantískri dulúðinni, í bakgrunni reis fjallgarðurinn á Reykjanesinu og þar fyrir ofan svifu skýjabólstrar með gylltum röndum. Meira að segja malbikið glampaði, það sló gylltum bjarma á göngustíginn við hringtorgið. Þegar ég kom yfir hæðina og það hallaði undan fæti á ný horfði ég yfir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.