Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Side 70

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Side 70
S i n d r i F r e y s s o n 70 TMM 2014 · 4 afhjúpa sökudólginn, og er ekki laust við að ákveðinn kafli æskunnar hafi þar með lokast. Í kjölfarið skrifaði ég greinarstúf í Morgunblaðið (það tók stundarkorn að sannfæra fréttastjórann um fréttagildið …) þar sem m.a. sagði þetta: Ljóst er orðið hver var höfundur að sakamálasögunum um Basil fursta og reyndist það vera danskur höfundur að nafni Niels Meyn. Um árabil hafa menn velt vöngum yfir hver gæti verið höfundur að Basil fursta en sögurnar um hann eru fyrir löngu orðnar fágæti fyrir safnara hérlendis. Ásgeir Eggertsson, fjölmiðlafræðingur, fékk vísbendingu frá Íslendingi sem skoðað hafði sýningu á dönskum glæpabók­ menntum í Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn árið 1984 og þóttist þekkja þar hefti með Basil fursta. Samkvæmt upplýsingum sem Ásgeir aflaði sér komu út 64 hefti með ævintýrum Basils fursta á árunum 1926 –1927 í Danmörku hjá þremur mismunandi forlögum og er Niels Meyn að minnsta kosti höfundur fyrstu heftanna.21 Meyn fæddist árið 1891 í Kaupmannahöfn og lést árið 1957 í Gentofte.22 Heftin í fyrstu útgáfuhrinunni í Danmörku voru 64 talsins einsog þarna kom fram, tólf fleiri en komu út á Íslandi, og var ævintýrið um tvíbura­ syst urnar djöfullegu, De djævelske Tvillinge søstre, − þar sem furstinn gekk í hnapp helduna sem fyrr sagði – númer 59 í röðinni ytra en 52 hérlendis. Seinasta heftið ytra bar titilinn De indiske Hævnere, sem kannski má snara sem Indversku hefndarenglarnir.23 Íslenska útgáfan kallaði Basil jafnan „konung leynilögreglumannanna“ en í dönsku útgáfunni var meiri áhersla lögð á að sæma hann nafnbótinni „De Tusind Maskers Mester”, eða Mað­ urinn með þúsund grímurnar. Niels (Gustav) Meyn fæddist í Danaveldi þann 11. desember 1891. Hann hóf feril sinn sem þýðandi spennusagna hjá dönsku bókaútgáfunni Litteraturselskabet á fyrsta áratug 20. aldar. Fyrsta sagan eftir hann birtist í vikublaðinu Hjemmet árið 1910, þegar hann var nítján ára gamall, en sama ár varð hann stúdent frá Fredriksberg Gymnasium og árið eftir cand. phil. Um tíma starfaði Meyn sem bókavörður á bókasafni dagblaðsins Politiken, eftir endasleppt nám í efnafræði. Fyrsta skáldsaga hans, Med luftskip til Mars (Með loftskipi til Mars), kom út árið 1911, en hana skrifaði hann í samstarfi við August Klingsey. Fjórum árum síðar skrifaði hann síðan fyrstu bók sína einn og óstuddur, framtíðarsöguna Rejsen til Venus (Ferðin til Venusar). Ásgeir Eggertsson segir að í danska rithöfundatalinu séu 142 bækur eftir Meyn taldar upp, flestar flokkast undir svokallaðar alþýðubókmenntir, að meðtöldum þýðingum af erlendum tungumálum. „Eignaði hann sér gjarnan stælingar og þýðingar sínar á erlendum reyfurum því greiðslur fyrir frum­ samin skrif voru hærri en fyrir þýðingar,“24 segir Ásgeir. Frá upphafi og þar til hann lést árið 1957 skrifaði Meyn sannanlega meira en 300 sakamálasögur, ef með eru taldar þær sögur sem finna má í glæpaheftum (kioskmagasin eða sjoppuritum). Hann notaði a.m.k. 30–40 mismunandi höfundarnöfn við skrifin, en auk þess samdi hann barnabækur,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.