Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Síða 82

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Síða 82
J ó n K a r l H e l g a s o n 82 TMM 2014 · 4 Elsta sagan, „The Villain from Valhalla“, birtist í tímaritinu Adventure Comics #75 sumarið 1942 en hana samdi Kirby í félagi við Joe Simon. Hér eiga ofurhetjurnar Sandman og Sandy í höggi við flokk víkinga sem gera strandhögg í New York. Á fyrstu síðunni má sjá skeggjaðan foringja flokksins standa á bökkum East River með Brooklyn­brúna og Empire State í baksýn. Hann hefur rifið Sandy upp á hárinu og sveiflar hamri sínum ógnandi yfir höfði Sandman. Íkonagrafían er sú sama og á forsíðu Journey into Mystery tuttugu árum síðar, nema að í stað geimskipsins og steinmannanna gefur hér að líta langskip með drekatrjónu og víkinga vopnaða sverðum. Fyrir neðan myndina eru aðstæður útskýrðar: „Úr myrkum helli fortíðarinnar rís Thor, hinn forni stríðsguð … það vottar ekki fyrir góðmennsku í æðum hans: Þess í stað lætur hann bara stjórnast af hatri og villimannlegri grimmd þegar hann gerir innrás í nútímann … hann sveiflar töfrahamri sínum … hann brennimerkir öfl samfélagsins tákni brjálæðisins.”8 Enda þótt Thor sé hér í hlutverki illmennisins en ekki ofurhetjunnar er verið að segja nákvæmlega sömu sögu og í „Thor the Mighty and the Stone Men from Saturn!“ og raunar þúsundum annarra myndasagna. Samfélagið er í uppnámi vegna árásar óvinveittra afla en áður en yfir lýkur tekst hetj­ unum að yfirbuga þorparana og koma á röð og reglu. Í lok sögunnar kemur í ljós að ekki er um raunverulega víkinga úr fortíðinni að ræða heldur hóp dulbúinna glæpamanna. Foringi hópsins er háskólaprófessor að nafni „Fairy Tales“ Fenton en hann hefur nýtt sér eigin goðsagna­ og tækniþekkingu til að hanna á sig skotheldan búning og smíða rafmagnaðan töfrahamar sem splundrað getur lögreglubílum og bankahvelfingum. Thor er, með öðrum orðum, bara ótíndur bankaræningi en eins og Chris Simon hefur bent á er sú ákvörðun höfundanna að láta Fenton bregða sér í gervi „germanska stríðs­ guðsins“ skiljanleg í ljósi vaxandi afskipta Bandaríkjamanna af ófriðnum í Evrópu.9 Önnur myndasaga frá stríðárunum, sem sögð er vera eftir þá Kirby og Simon, nefnist „The Shadow of Valhalla“ en hún birtist í tímaritinu Boy Commandos #7 sumarið 1944. Báðir höfðu þeir félagar verið kvaddir í bandaríska herinn þegar sagan birtist og er talið líklegt að handritshöf­ undurinn Don Cameron (1905–1954) og teiknarinn Louis Cazeneuve (1908– 1977) hafi unnið mestan hluta vinnunnar.10 Söguhetjur Boy Commandos­ seríunnar, sem farið var að gefa út 1942, eru fjórir munaðarlausir drengir frá Frakklandi, Bretlandi, Hollandi og Bandaríkjunum en leiðtogi þeirra er fullorðinn hermaður að nafni Rip Carter. Saman berst hópurinn gegn útsendurum Öxulveldanna á ýmsum vígstöðvum. Sögusvið „The Shadow of Valhalla“ er Noregur undir þýskum yfirráðum; drengjaflokki Carters er falið að leita að vopnum í gömlum kastala. Í ljós kemur að byggingin er sjálf Valhöll og er hún hernumin af hópi nasista. Það slær í brýnu milli flokkanna og eyðileggst hluti kastalans í sprengingu. Í framhaldinu skakka Thor, Freyr, Bragi og Heimdallur leikinn og draga óboðnu gestina fram fyrir hásæti
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.