Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Page 86
J ó n K a r l H e l g a s o n
86 TMM 2014 · 4
ófriðarins á Kóreuskaganum sem Bandaríkjamenn hófu afskipti af snemma
á sjötta áratugnum en lýsingin á „skrítna, hræðilega vopninu“ bendir þó allt
eins til þess að verið sé að vegsama (undir rós) mikilvægi kjarnorkuárásanna
á Hiroshima og Nagasaki fyrir endalok síðari heimsstyrjaldar og vopnaðan
frið kaldastríðsáranna. Um leið kallast sagan óbeint á við Prologus Snorra
Eddu. Í þeim texta er fullyrt að norrænu goðin hafi upprunalega komið til
Svíþjóðar frá Asíu. Þór hafi til að mynda upphaflega verið hinn forngríski
Tror, sonur Menons konungs og Priami eiginkonu hans í Tróju. Í Skáld
skaparmálum er hnykkt á þessu:
En eigi skulu kristnir menn trúa á heiðin goð og eigi á sannindi þessarar sagnar
annan veg en svo sem hér finnst í upphafi bókar er sagt er frá atburðum þeim er
mannfólkið villtist frá réttri trú, og þá næst Tyrkjum, hvernig Asíamenn þeir er æsir
eru kallaðir fölsuðu frásagnir þær frá þeim tíðindum er gerðust í Tróju til þess að
landsfólkið skyldi trúa þá guð vera. 21
Sögu Ditko lýkur með áþekkum hætti á mynd sem sýnir eldri kennara segja
við tvo nemendur í nútímanum: „Með tímanum var ekki lengur hægt að
finna ummerki um hellinn og hvarf Thors varð að leyndardómi en hann að
þjóðsagnapersónu og margar frásagnir um aflið sem bjó í þrumufleyg hans
urðu til í aldanna rás.“22
Margt bendir til að myndasögurnar fimm frá árabilinu 1940 til 1959 sem
hér hafa verið greindar séu meðal þeirra heimilda sem Lee, Liber og Kirby
byggðu á þegar þeir sköpuðu fyrstu söguna um The Mighty Thor. Erfiðara
er að fullyrða um milliliðalaus tengsl „Thor the Mighty and the Stone Men
from Saturn!“ við norrænar goðsagnir. Staðreyndin er sú að í elstu Marvel
sögunum má greina fjölbreytileg textatengsl sem vísa samtímis í ýmsar
ólíkar áttir. Steinmennirnir frá Satúrnusi sem dr. Blake/Thor glímir við
eru ágætt dæmi um þetta. Fyrir lesanda sem er handgenginn íslenskum
miðaldatextum er einboðið að tengja þessar persónur við bergrisana sem
lýst er í SnorraEddu. Fyrir þann sem þekkir til ferils Jacks Kirby blasir
hins vegar við að þetta eru sömu geimverur og hann teiknaði upp í fjórum
sögum á árunum 1959 til 1961 og byggði á þekktum skúlpurum sem fyrir
finnast á Páskaeyju í SuðurKyrrahafi. Í sumum þessara sagna er foringi
steinmannanna nefndur Thorr en líkt og Richard Kolkman hefur vakið
athygli á er skýringin ekki endilega sú að Kirby hafi verið að lesa Snorra
Eddu heldur rit norska landkönnuðarins Thors Heyerdahl, AkuAku: The
Secret of Easter Island sem nýkomið var út í enskri þýðingu: „Er ekki rökrétt
að álykta að Jack hafi ekki aðeins fengið innblástur frá bókinni heldur líka
sýnt höfundi hennar, manni að nafni Thor, virðingu sína með því að tengja
saman jafnsundurleit fyrirbæri og stytturnar á Páskaeyju og norska þrumu
guðinn?“ spyr Kolkman.23 Í elstu bandarísku myndasögunum um Thor
er unnt að tengja illmennin við átök Bandaríkjamanna við Þriðja ríkið og
tilteknar þjóðir í SuðausturAsíu. Með svipuðum hætti er eðlilegt að tengja