Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Side 87

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Side 87
„ Æ s i l e g a s t a o f u r h e t j a a l l r a t í m a“ TMM 2014 · 4 87 steinmennina í elstu Marvel­sögunni við þá spennu sem ríkti í samskiptum austurs og vesturs á sjöunda áratugnum. Þess má geta að Noregur var annað af tveimur NATO­ríkjum í Evrópu sem átti landamæri að Sovétríkjunum á þessum tíma (hitt var Tyrkland). Slíkar pólitískar tilvísanir héldu áfram að vera mikilvægur þáttur sagnanna hjá Marvel. Í annarri sögunni um The Mighty Thor sem birtist í Journey Into Mystery #84 haustið 1962 glímdi hann til að mynda við kommúnista sem voru að leggja undir sig lítið land í Suður­ Ameríku.24 Á þeirri hálfu öld sem liðin er frá útgáfu „Thor the Mighty and the Stone Men from Saturn!“ hafa komið út yfir 500 myndasögur um Thor og ævintýri hans. Þátttaka hans í The Avengers seríunni hefur líka haft sitt að segja fyrir frægð hans en alls hafa komið út hátt í 600 sögur helgaðar þessum hópi ofurhetja. Þá má nefna að árið 1966 voru valdar sögur um Thor þróaðar fyrir sjónvarp í teiknimyndaflokknum The Marvel Super Heroes. Nýjustu afurðirnar af þessu tagi eru kvikmyndirnar sem Úlfhildur Dagsdóttir ræðir í grein sinni: Thor (2011) í leikstjórn Kenneth Branagh, The Avengers (2012) í leikstjórn Joss Whedon og Thor: The Dark World (2013) í leikstjórn Alan Taylor. Í flestum þessum myndasögum, teiknimyndum og kvikmyndum eru leikin tilbrigði við þau grundvallarstef sem greina má í elstu sögunni um The Mighty Thor og „frumtextum“ hennar: Ofurhetjan þarf að bjarga jörðinni eða Ásgarði frá illum öflum, þar með talið jötnum, geimverum og brjáluðum vísindamönnum, að ógleymdu illmenninu Loka. Í vissum tilvikum hafa handritshöfundar sótt sér innblástur beint til fornnorrænu heimildanna sem og til endurritanna þeirra, til að mynda í Niflungahring Wagners.25 En í raun hefur orðið til sjálfstæður goðsagnaheimur í kringum persónur Marvels sem er ekki síður margbrotinn en sá goðsagnaheimur sem kynnast má með lesti eddukvæða og Snorra­Eddu. Og stöðugt skjóta nýjar endur­ ritanir og afbrigði upp kollinum. Má til dæmis nefna smásöguna „Thor Meets Captain America“ eftir David Brin (f. 1950) frá árinu 1986 en hún lýsir því þegar norrænu goðin ganga í lið með þýskum nasistum og tryggja þeim sigur í síðari heimstyrjöldinni.26 Árið 2003 unnu Brin og teiknarinn Scott Hampton (f. 1959) upp úr smásögunni grafíska skáldsögu sem nefnist The Life Eaters.27 Líkt og kápumyndin gefur til kynna er Thor kominn þar í svipaðar stellingar og í elstu sögu Jacks Kirby um efnið, „The Villain from Valhalla“ frá 1942. Í einhverjum skilningi vitjar æsilegasta ofurhetja allra tíma þar uppruna síns. Tilvísanir 1 Sjá Úlfhildi Dagsdóttur, „Ása­Þór og förin til Hollywood“, Tímarit Máls og menningar 75/1 (2014): 57–70. 2 Sjá m.a. Mark Evanier, Kirby. King of Comics (New York: Ambrams, 2008), s. 111–163. 3 Snorri Sturluson, Edda. Prologue and Gylfaginning, útg. Anthony Faulkes (London: Viking
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.