Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Side 95

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Side 95
TMM 2014 · 4 95 Haukur Már Helgason 1991 smásaga Það tókst. Ótrúlegt. Það náðist samband. Eftir að hafa talað við lægri guð­ dóma síðustu vikur og mánuði. Drottinn Maítrea var óneitanlega mikil­ fenglegri en Mikael sem var ekki drottinn heldur eitthvert millistig, mið­ vitur alheimssál. Eða Immanúel sem var næs og tilkomumikill en enginn sagði hreint út hvort væri þessi Immanúel Kant eða ekki. Nú hafði mamma hans loksins náð beinu sambandi við Guð. Óumdeilt æðsta kennivald ef ágreiningur skyldi vera milli hinna. Þó ekki væri nema áherslumunur. Þetta er Guð sem talar. Svo kom örlítið hik. Hvað viljið þið vita? Hvers vegna höfðuð þið samband? Hvað liggur ykkur á hjarta? Guð virtist svolítið þurr á manninn. Mamma Egils nú Guð sat í öðrum hægindastólnum úr nýja sófasettinu í stofunni í blokkaríbúð í Kópavogi. Í nýja hverfinu sem lá fast upp að Breiðholti. Hálfu ári fyrr voru þau nýflutt inn. Nú höfðu andlega sinnuðu nágrannarnir allir kynnst. Í hinum hægindastólnum sat pabbi Egils. Nýi sófinn var ekki kominn í stofuna enda hafði Egill barist gegn því að gamla sófanum yrði fleygt, sófanum sem hann ólst upp með. Í honum sátu nágrannar af næstu hæð. Feita konan sem kom oft í kaffi til að tala við mömmu Egils um barnsföður sinn sem var ömurlegur maður. Og miðils­ störf og hugleiðslu. Egill kallaði hana Láru jaka en bara í hljóði, hún hét Lára Jakobsdóttir og var svo feit að hugur Egils rúmaði hana varla. Hún var tvöfalt feitari en foreldrar hans en samt hafði nærvera hennar ekki grennandi áhrif á þau heldur fannst Agli þau bara feitari fyrir vikið. Það var eins og hún gerði allt í kringum sig feitt. Egill skammaðist sín fyrir að sjá ekkert annað en rúmmál konunnar, sagði ekkert af þessu upphátt og lagði sig allan fram um að sjá eitthvað annað við hana en tókst það ekki. Hún gerði grín að honum fyrir að drekka kamillute, spurði hvort hann væri ekki meira en nógu rólegur samt. Hann skildi ekki hvers vegna þær mamma hans voru orðnar svona miklar vinkonur, hvers vegna hún var alltaf í heimsókn. Maðurinn sem hún var nýbúin að kynnast en þau kunnu öll vel við kom með henni. Hljóðlátur, lágvaxinn, sköllóttur bankastarfsmaður með visna, spastíska hægri hönd sem Egill reyndi að leiða hjá sér þegar þeir heilsuðust. Hann virtist vera með fullu viti og var svo vel liðinn í bankanum að hann átti von á stöðuhækkun. Og hann var víst ekki vondur við Láru jaka eins og skíthællinn fyrrverandi. En Egill hafði aldrei heyrt hann segja neitt að fyrra bragði. Bara svara spurn­
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.