Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Side 98
H a u k u r M á r H e l g a s o n
98 TMM 2014 · 4
er svona. Og hitt er hinsegin. Takið eftir því. Hafið í huga og munið að.
Hvernig eigum við að koma fram við fólk sem kemur illa fram við okkur?
spurði Lára jaki. Hvernig er best að fást við reiði? Það er allt löngu komið
fram, sagði Guð og þið vitið það mætavel. Komið fram við aðra eins og þið
viljið að þeir komi fram við ykkur. Það þýðir ekki að láta endalaust undan.
Sumt fólk er eins og börn. Bara pínulitlar óþroskaðar sálir. Hvað sem lík
amar þeirra þroskast. Slíkt fólk getur maður þurft að koma fram við eins
og börn. Egill hafði á tilfinningunni að Guð væri óþolinmóður. Ertu þá að
tala um smábarnasálir eins og Mikael orðar það? spurði pabbi Egils. Mikael
hafði sagt þeim ákveðinn vinsæll popptónlistarmaður væri gott dæmi um
smábarnasál. Mikael hafði líka sagt að Egill væri þroskuð sál. Sjöunda stigs
þroskuð sál. Það gerði Egil ævareiðan því foreldrar hans voru sjöunda stigs
gamlar sálir sem er heilu aldursstigi ofar. Sjöunda stigs gamlar sálir eru alveg
við það að ljúka jarðvistum sínum. Sjöunda stigs gamlar sálir vita svo mikið
að þær þurfa varla neitt að aðhafast heldur sitja hjá, fylgjast með og brosa að
flónsku lægri tilverustiga á meðan þær greiða úr síðustu karmaskuldunum
sínum. Sjöunda stigs gamlar sálir eru langþroskaðastar. Þær eru búnar að
loka barnum, henda síðasta kúnnanum út og eiga rétt eftir að slökkva ljósin
og læsa. Þroskaðar sálir eru þessi síðasti kúnni. Það er allt í volli hjá þrosk
uðum sálum, sagði Mikael. Það er svo mikið karma. Allt á fullu, mikið til
finningastreð. Egill varð bálreiður. Að þau skyldu voga sér, að hann skyldi
voga sér að halda því fram að hann hefði tekið út færri jarðvistir og minni
þroska en foreldrar hans. Að það væri allt á rúi og stúi í karmanu hans, að
hann væri fastur í hringrás jarðvista. Og tilfinninga. Næstu aldirnar. Egill
reiddist, móðgaðist, neitaði, hrópaði og stappaði niður fótunum þar til
Mikael spurði: sagði ég sjöunda stigs þroskuð sál? Ég meinti sjöunda stigs
gömul. Sjöunda stigs gömul sál auðvitað eins og foreldrar þínir. Og Egill varð
sáttur. Það er mikilvægt, sagði Guð núna, að hafa það í huga þegar þið takið
á móti skilaboðum sálnahópa eins og Mikaels að þó að þeir geti fært ykkur
mikinn þroska, mikinn skilning, þá eru þeir ekki almáttugir. Ekki alvitrir.
Mikael. Tilvist hans liggur á sviði milli ykkar og mín. Mikael er ágætur í
að koma ákveðnum skilaboðum til mannfólksins. En hann gerir það á sinn
hátt. Og raunar á ykkar hátt. Hann talar mál sem þið skiljið. Það er nokkurs
konar líkingamál. Og það er ágætt. Jafnvel nauðsynlegt. En það er ekki eina
leiðin til að lýsa því sem hann segir frá. Smábarnasálir. Þroskaðar sálir. Allt
þetta. Þetta eru bara orð. Þau hafa tiltekna merkingu í tilteknu kerfi. Bara
það. Þið þurfið að passa ykkur að festast ekki í orðunum. Agli þótti þetta
ennþá betra en fyrri leiðrétting Mikaels. Nú hafði hann Guð fyrir því, svo
gott sem, að það væri ekkert að marka Mikael. Hann væri eiginlega bara að
tala barnamál fyrir vitleysinga. Þeir sem raunverulega skildu hvernig hlutum
væri háttað í alheiminum myndu aldrei taka undir með honum. Agli þótti
Guð samt leiðinlegur. Geðstirður. Honum fannst skemmtilegra að tala við
hina. Kannski var það ekki Guð heldur allir hinir þarna inni sem urðu svona