Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Page 104

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Page 104
S o f f í a B j a r n a d ó t t i r 104 TMM 2014 · 4 áhorfandann, gera hann virkan í leikhúsinu. Áhorfendur áttu að verða hluti af sköpunarferlinu – það eru þeir sem skapa nýja merkingu. Leikhúsfræðingurinn Erika Fischer­Lichte bendir á að þrátt fyrir ágreining og ólíkar stefnur framúrstefnuleikhúsins á fyrri hluta 20. aldar, hafi allir fulltrúar þess skilgreint það sem brú yfir gjána sem skilur á milli lífs og listar og að sameiginlegur vilji hafi verið fyrir því að flytja listina í lífið. Hvort sem leikhúsið sé hugsað sem hátíð, helgiathöfn, áróður eða bylting.13 Leikhúsið átti að ögra áhorfendum til virkni og þar af leiðandi umbreyta samfélaginu – og jafnvel að lækna grimmd veruleikans. Lykilhugtak í hugmyndafræði Artauds er sem fyrr segir rýmisljóðlist. Nýsköpun leikhústungumálsins skyldi felast í að innleiða í rýmið þá ljóð­ rænu sem er handan orðsins. Hann vildi meina að í vestrænu leikhúsi væri allt það sem lyti að öðru en texta sett í bakgrunn, og einungis nýtt sem stuðningur við texta/orð. Hann setur stórt spurningarmerki við þetta. Ég staðhæfi að sviðið er áþreifanlegur og sérstakur staður sem kallar á að það sé nýtt og kallar á að þar sé talað sértækt tungumál […] handan við ljóð textans er hin tæra og einfalda ljóðlist, án forms og orða.14 Hið nýja leikhúsmál er líkamstungumál, sem hann kallaði einnig nátt­ úrutungumál, og átti að höfða til skynjunar fremur en skilnings. Einstakt tungumál sem liggur á milli hreyfingar og hugsunar í rými.15 Með nýju leik­ húsmáli skyldi hlutverk og tilgangur orðanna breytast. Orðið er þá tekið úr samhengi og notað á hlutlægan hátt í nýju rými. Í þessu felst einnig ákveðin leit að töfrum líkt og hjá sönnum súrrealista – þrá eftir sönnum tengslum við tilvistina. Líklega felst súrrealísk köllun í hverju skáldi. Frelsun tungu­ málsins snýst einnig um frelsun mannsins í skynjun á sjálfum sér í rýminu. Artaud var skáld og líkt og aðrir súrrealistar þá leitaði hann að milliliðalausu sambandi við tungumálið. Hann leitaði að ástandi sem ekki er, ástandi sem hann þráði fyrir mannlega tilveru. Í leikhúsi Artauds skyldi engin leikmynd vera. Fyrst og fremst rými með leikurum og áhorfendum. Í stað leikmyndar eru leikararnir tákngervi. Artaud vildi leita nýrra leiða í lýsingu, og hún átti að þjóna stóru hlutverki í að fylla rýmið af skáldskap. Búningar skyldu vera tímalausir og ritúalískir. Sviðið átti að vera opið. Stólar áhorfenda jafnvel hreyfanlegir til að geta haft breytilegt sjónarhorn. Tengsl áhorfenda og leikara eru sérstök og mikilvæg í Grimmdarleikhúsinu. Leikhúsið á að tengja áhorfandann við líkama sinn og þar með við tilfinningar sínar. Til að hafa sem mest áhrif á áhorfendur áttu þeir að vera í miðjum salnum en leikararnir á pöllum allt um kring. Á þann hátt verða skynhrifin sterkari. Artaud leggur aðaláherslu á öndunina og taktinn í henni í vinnu leikarans. Hver hreyfing, hver tilfinning skal tengjast ákveðinni tegund öndunar.16 Hið nýja tungumál átti að hreinsa áhorfendur og leikhúsið því að hafa umbreytandi áhrif. Hann notar hugtakið katarsis í þessu sambandi með
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.